Þegar maður er fjögurra ára og vill kannski ekki alltaf borða hvað sem er hljómar allt betur ef það heitir eftir teiknimyndafígúrum. Við höfum eldað Spiderman fisk, Ironman súpu, Batman pönnukökur og súperman eitthvað sem ég man ekki hvað var í augnablikinu. Bangsímon kjúklingurinn á sér þó lengsta sögu og dregur nafn sitt af því að í sósunni er uppáhaldið hans Bangsímons, jú einmitt hunang. Þessi réttur er mjög fljótlegur og alveg sérstaklega bragðgóður, sósuna væri sennilega hægt að drekka með röri svo ljúffeng er hún. Ég geri reyndar stundum spari útgáfu af þessum rétti og skelli smá hvítvíni út í sósuna sem ég læt sjóða í spað svo allt áfengi gufar upp, því ekki viljum við að Bangsímon og félagar finni á sér. En það má vel sleppa hvítvíninu og nota bara vatn eða t.d eplasafa í staðinn. Hef prófað eplasafann og það kom bara skrambi vel út.
Kjúklingur í hunangs- sinnepssósu (Bangsímon kjúklingur) – Fyrir 3-4
- 3 kjúklingabringur, skornar í tvennt og þynntar með kjöthamri eða botni á pönnu.
- 2 skallottulaukar, smátt saxaðir
- 1 glas hvítvín (2,5 dl) eða vatn, eða eplasafi
- 1/2 kjúklingateningur
- 1 msk grófkorna sinnep
- 1 tsk hunang
- 1 peli rjómi
- Salt, pipar og steinselja til skrauts.
Aðferð:
Kjúklingabringur kryddaðar með salti og pipar og brúnaðar á báðum hliðum á vel heitri pönnu. Teknar af pönnunni og settar til hliðar. (Var að fjárfesta í svona ægilega fínni pottjárnspönnu og hef aldrei náð að brúna kjöt jafn vel eins og á henni. Pantaði hana frá USA og kostaði hún lítinn 5000kall, með tollum og sendingarkostnaði. Fann sambærilegar pönnur hér heima en þær kostuðu allar frá 23.000. Mæli eindregið með að nota svona góða pönnu, hitnar mjög jafnt og vel..)
Smá smjörklípa eða olía sett á pönnuna og skallottulaukurinn steiktur í um 1 mínútu.
Þá er hvítvíninu hellt á pönnuna og látið sjóða niður um helming. Tekur 2-3 mínútur.
Hunanginu, sinnepinu og rjómanum hellt saman við og kjúklingabringurnar settar aftur á pönnuna, látið malla í 10 mínútur þar til kjúklingurinn er tibúinn.
Stráið steinseljunni yfir. Ég bar þetta fram með kartöflumús og hvítvínsglasi. Ekta þægindamatur 🙂
Sara Elísabet
ok namm, þetta ætla ég að prófa á næstunni!
Asdis
Eg gerði þennan rétt i kvöld, notaði reyndar beikon og kjuklingalundir, og þetta var mjög ljuffengt! Takk fyrir uppskriftina.