Er ekki alveg að koma sumar?.. Við ákváðum í gær að vera með grillaðar kótilettur, sem er sennilega ó-janúarlegasti matur sem fyrirfinnst. Ég mundi þá eftir uppskrift af marineringu sem ég hafði séð hjá henni Inu Garten vinkonu minni og ákvað að prófa. Útkoman var mjög góð og þetta er marinering sem alveg smellpassar við lambakjöt, án þess þó að vera of yfirgnæfandi. Þar sem Ina kallar lambakjötið sitt grískt, ákvað ég að vera með létta jógúrtsósu með og mína útgáfu af grísku salati. Hasselback kartöflurnar fengu svo að fylgja með. Ég hef verið að lesa á mörgum bloggum um hina miklu dásemd sem brúnað smjör er, svo ég ákvað að taka kartöflurnar upp á annað og æðra stig og hellti brúnuðu smjöri yfir þær áður en ég bakaði þær og sá svo sannarlega ekki eftir því. Mæli eindregið með því að þið skellið í brúnað smjör við fyrsta tækifæri, það opnaðist nýr heimur fyrir mér við þessa aðgerð.. möguleikarnir á þessari dýrð eru endalausir. Hérna eru góðar leiðbeiningar um hvernig best er að bera sig að við gerð brúnaðs smjörs.
- 8 lambakótilettur (ég gleymdi að athuga vigtina en þetta voru 8 vænar sneiðar, með lundum, ég lét saga þær í tvennt fyrir mig, þetta dugði mjög vel fyrir 3 fullorðna og 1 barn)
- 2 hvítlauksrif, smátt söxuð
- 1 msk saxað rósmarín
- 2 msk sítrónusafi
- 1 tsk salt og 1 tsk pipar
- 1 dl ólífuolía
- 1 dl rauðvín
Öllu blandað saman og hellt yfir lambakjötið, ég setti þetta í rennilása plastpoka og lét standa við stofuhita í 1,5 klst. Má líka gera daginn áður og láta marinerast í ísskáp. Kjötið er svo grillað á útigrilli í um það bil 5-6 mínútur á hvorri hlið við frekar háan hita. Ég stráði svo saxaðri steinselju yfir kjötið þegar það var tilbúið. Það er nú ekkert möst samt :
Litlar hasselback kartöflur með brúnuðu smjöri:
- Um það bil 10-12 frekar litlar kartöflur, skolaðar og þerraðar (Ég reiknaði með þremur kartöflum á mann)
- 75 grömm smjör, brúnað
- Salt, pipar og rósmarín.
Raufar skornar í kartöflurnar, smjörið brúnað og hellt yfir, Saltað og piprað og nokkrar rósmaríngreinar settar með. Bakað í ofni við 180 gráður í 60 mínútur.
Grískt salat:
- 1 agúrka, kjarnhreinsuð og skorin í sneiðar
- 2 öskjur kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
- 1/2 lítil krukka ólívur
- 1/2 krukka grillaðir ætiþistlar (Ítalía ætiþistlar, fást í Bónus og Hagkaup)
- 1/2 krukka salat feti, vatnið sigtað frá
- Salt, pipar, 1 msk hvítvínsedik, 2 msk ólífuolía og þurrkað oregano
Öllu blandað saman í skál, ólífuolíu og ediki skvett yfir og smakkað til með salt, pipar og óreganó.
Graslaukssósa:
- 2 dl ab mjólk
- 1 dós sýrður rjómi
- 1/2 búnt graslaukur, smátt saxaður (þessi sem fæst í plastbökkunum)
- 1/2 tsk hunang
- 1 tsk hvítvínsedik
- Salt og pipar
Öllu blandað saman og smakkað til með salti og pipar
Gunnhildur
Var með þetta gríska salat í gærkveldi í matarboði, mjög gott