Við fjölskyldan áttum svo sannarlega skemmtilegan dag þennan sunnudaginn. Deginum eyddum við að hluta til upp í Bláfjöllum þar sem 4 ára einkasonurinn renndi sér á skíðum í fyrsta skiptið. Hann er að sjálfsögðu upprennandi skíðasnillingur. En grínlaust þá lá þetta mjög vel fyrir honum og honum bæði tókst að renna sér nokkrar heilar ferðir einn án þess að detta sem og að fara einn á ”töfrateppið” án þess að detta. Nokkuð gott myndi ég halda. Hann hefur vonandi fengið skíðagenin úr föðurættinni því ekki hefur undirrituð verið þekkt fyrir að vera mikil skíðadrottning þrátt fyrir að redda sér fyrir horn í sæmilega aflíðandi brekkum.
Það lá því ekkert annað fyrir þegar heim var komið með kaldar og rjóðar kinnar en að baka eitthvað huggulegt með kaffinu. Mamma lánaði mér fyrir helgi forláta og fallega eplaskífu pönnu sem elskuleg móðuramma mín heitin keypti í einni af sínum frægu Svíþjóðarferðum sennilega fyrir um 35 árum. Mamma bakaði stundum eplaskífur þegar ég var lítil og ég hef alltaf verið jafn heilluð af þessum fallega grip, sem og litlu kúlulaga dásamlegu bollunum sem hún gefur af sér. Ég er handviss um að ef það væri hægt að borða ský, svona góðviðris bólstra, væru þau eins og nýbakaðar eplaskífur. Fislétt og myndu bráðna í munni. Þetta eru eins og litlir skýjahnoðrar svei mér þá. Ég get í augnablikinu ekki ímyndað mér jafn einfalt og huggulegt sunnudagsbakkelsi. Maður gæti næstum byrjað að tala dönsku á sunnudögum út af þessu.
Talandi um dönsku þá lét mamma fylgja pönnunni úrklippta uppskrift úr gömlu dönsku blaði af ekta ”gammeldas æbleskiver”. Ég notaði uppskriftina til hliðsjónar bætti einu eggi við og smá vanillu og útkoman varð frábær. Nafnið eplaskífur held ég að sé bara til komið vegna þess að bollurnar eru eins og epli í laginu. Í sumum gömlum uppskriftum er hins vegar notast við litla eplabita sem fyllingu í bollurnar, sem ég og gerði. Einnig væri hægt að setja rúsínur inn í þær eða sleppa alveg fyllingu. Þetta fer jú allt eftir smekk. Reddið ykkur nú eplaskífupönnu og búið til þetta góðgæti til fyrsta tækifæri.
Gamaldags eplaskífur (ca. 30 skífur):
- 4 egg
- 5 dl ab mjólk eða súrmjólk
- 1 tsk vanilluextract
- Rifinn börkur af hálfri sítrónu
- 2 msk flórsykur
- 300 gr hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 1 epli skorið í mjög smáa teninga
Aðferð: Hrærið saman egg, ab mjólk, vanillu, sítrónubörk og flórsykur. Hrærið hveitið, matarsódann og saltið saman í annarri skál. Hellið eggjablöndunni svo út í hveitið og hrærið þessu vel saman með písk. Áferðin á deiginu á að vera svipuð eins og á lummu-eða vöffludeigi. Leyfið deiginu að jafna sig í ca 15 mínútur áður en bakað er úr því. Hitið eplaskífupönnuna á meðal-háum hita og setjið örlítið smjör (1/4 tsk) í hvert hólf á pönnunni. Þegar smjörið er farið að krauma hellið þá deiginu í hvert hólf. Ekki fylla hólfin alveg því diegið lyftir sér aðeins. Stráið nokkrum litlum eplabitum yfir deigið ef þið viljið.
Þegar loftbólur byrja að myndast á deiginu og kantarnir orðnir stífir snúið þá bollunni við með gaffli svo hún eldist hinum megin og kúla myndist. Æfingin skapar meistarann í þessu. Endurtakið svo þar til allt deigið er búið. Mér fannst ekki þurfa að setja smjör í hvert skipti áður ens ég hellt deigi í formin, ég setti kannski í annað hvert skipti. Dustið flórsykri yfir eplaskífurnar og berið þær fram volgar.
Skildu eftir svar