Eins og það er gaman og nauðsynlegt að fara í frí svona endrum og sinnum þá er alltaf jafn gott að koma heim aftur. Það þykir mér að minnsta kosti. Þrátt fyrir vandræðalega mikla flugþreytu og svefnleysi hjá heimilisfólki hér í gær gat ég eiginlega ekki beðið eftir að komast aftur í eldhúsið mitt. Ég eyddi talsverðum tíma í fríinu í að glugga í matartímarit og eftir að hafa rekist á girnilega uppskrift að grísakótilettum í Cooking Light hugsaði ég mér gott til glóðarinnar að elda eitthvað svipað þegar heim var komið. Útkoman var einstaklega góð og mér þykir þetta upplagður föstudags- eða helgarmatur.
Appelsínugljáðar grísakótilettur með sinnepi og rósmarín (fyrir 4):
- 5 grísakótilettur með beini
- Safinn úr tveimur stórum appelsínum (u.þ.b 2 dl)
- 2 msk appelsínumarmilaði
- 2 msk grófkorna sinnep
- 1 hvítlauksrif smátt saxað eða rifið á rifjárni
- 3-4 ferskar rósmaríngreinar eða 2 tsk þurrkað
- Salt og pipar
Aðferð: Hitið ofn í 180 gráður. Pískað saman í skál appelsínu safa, marmilaði, sinnepi, hvítlauk og kryddið með smá salti og pipar og 1 tsk af söxuðu rósmarín. Kryddið kjötið með salti og pipar og steikið á vel heitri pönnu þar til vel brúnað. Færið kjötið yfir á disk. Hafið pönnuna á meðalháum hita og hellið vökvanum á. Hleypið suðunni upp og leyfið að sjóða í 5 mínútur eða þar til sósan hefur aðeins þykknað. Leggið kjötið þá aftur á pönnuna og veltið vel upp úr sósunni. Leggið rósmaríngreinar ofan á og bakið í ofni í 8-10 mínútur eða þar til kjötið er eldað í gegn. Berið fram með fersku salati.
Skildu eftir svar