Hér hefur ekki verið eldað mikið undanfarna daga. Svona af kvöldmat allavega. Varla neitt síðan bjórkjúklingurinn góði var eldaður (sem við erum reyndar enn að hugsa um og ætlum að elda aftur við fyrsta tækifæri). Við höfum verið dálítið út um hvippinn og hvappinn, fórum á þorrablót og matarboð og svona allskonar fínerí. Auk þess hefur verið mikið að gera í skólanum og almennt kvöldmatar andleysi gert vart við sig hjá mér. Hver kannast ekki við andlausa kokkinn? Sem betur fer stoppar hann nú yfirleitt stutt við hjá mér svo ég býst við að skella hingað inn einhverjum góðum kvöldmat vonandi á næstunni.
Okkur var jú einmitt boðið í matarboð í kvöld svo ég ákvað að nota tækifærið fyrst ég þurfti ekki að gera kvöldmat og baka þessar indælis muffins til að fara með í matarboðið, verandi komin í hálfgerð eldhús og blogg fráhvörf. Þessar kökur eru í miklu, miklu uppáhaldi á heimilinu, sérstaklega hjá eiginmanninum. Hann rifjar reglulega upp hversu góðar þær eru og hvort ég þurfi ekki bráðum að fara að baka þær aftur. Sem er kannski ekkert skrýtið því þær eru dásamlegar. Ofsalega mjúkar og góðar og afar fljótgerðar. Birkifræin gefa þeim svo alveg sérstaklega skemmtilega áferð og bragðið er ljúffengt. Ég mæli heilshugar með þessum svolítið öðruvísi muffins kökum.
Sítrónumuffins með birkifræjum:
- 150 gr smjör
- 3 egg
- 100 gr hrein jógúrt
- Hýðið af tveimur sítrónum rifið af með rifjárni (bara þetta gula)
- 1 tsk vanilluextract
- 150 gr hrásykur
- 225 gr fínt spelt eða hveiti
- 2 msk birkifræ
- 2 tsk vínsteinslyftiduft (eða venjulegt)
- 1 tsk matarsódi
Ofn hitaður í 180 gráður, eða 170 með blæstri. Smjörið brætt og aðeins leyft að kólna. Sykri, spelti, lyftidufti, matarsóda og birkifræjum blandað saman í skál. Egg, jógúrt, vanilla og sítrónuhýðið hrært vel saman. Eggjablöndunni svo blandað saman við þurrefnin og smjörinu svo bætt saman við. Hrært saman með sleif og sett í 12 pappírsklædd muffinsform. Bakað í 20 mínútur.
- Safi úr einni sítrónu
- 3-4 dl flórsykur
Hrært saman þar til ákjósanlegri áferð er náð. Sítrónur eru misstórar og ég mældi ekki nákvæmlega hversu mikill flórsykur fór í glassúrinn. Byrjið á 3 dl af flórsykri og sítrónusafanum og bætið svo smám saman flórsykri út í þar til glassúrinn er dálítið þykkur en lekur samt af skeið. Þegar kökurnar hafa kólnað í u.þ.b 20 mínútur er sett um 1 tsk rúmlega af glassúr á hverja köku og dreift aðeins úr honum með skeiðinni.
[…] Sítrónumúffur með birkifræjum KotasælubollurBrokkolíbaka með geitaosti […]