Nú blánar yfir berjamó og ekki seinna vænna en að fara að huga að því hvað gera eigi við öll blessuðu berin sem við ætlum að týna í haust. Öll segi ég já, en ég veit nú reyndar ekki hversu öflug berjauppskeran verður þetta haustið. Okkar helstu berjastaðir lofa því miður ekki svo góðu, allavega verður uppskeran ekki eins og í fyrra. Það má þó vona og sannarlega týna það sem til er. Við erum svo heppin að eiga ansi öfluga berjatýnslumenn í innsta hring í fjölskyldunni sem hafa verið svo elskuleg að leyfa okkur að njóta afurðanna síðastliðin haust og gefið okkur helling af ljúffengum vestfirskum aðalbláberjum. Við erum því orðin ansi góðu vön og höfum búið svo vel að luma á aðalbláberjum í frystinum í allan vetur. Það var því með hálfgerðum trega á dögunum þegar ég kláraði berin úr síðasta frystipokanum með von í hjarta um að komandi haust yrði gott við okkur og gæfi okkur dálítið af bláberjum svona áður en þessi fáu frjósa.
Það var þó ekki leiðinlegt hlutverk sem síðustu berin fengu, en þau urðu að þessari dásamlegu bláberjasósu. Sósan er sannarlega fjölnota, ekki of sæt, með dásamlegum vanillukeim og mikið finnst mér skemmtilegt að gera eitthvað annað en sultu úr bláberjum svona til tilbreytingar. Sósan er sérstaklega ljúffeng með góðum vanilluís. Hana má líka nota út á grjóna- eða hafragrautinn, yfir gríska jógúrt eða skyr og eiginlega bara hvað sem manni dettur í hug. Ég bjó til dæmis til bláberja pavlovu um daginn þar sem ég hellti sósunni yfir þeytta rjómann og blandaði aðeins saman við, það kom virkilega vel út. Svo er nú líka voða sætt að setja sósuna í fallega krukku með lítilli slaufu og gefa einhverjum vel völdum.
- 3 bollar bláber (ég notaði frosin aðalbláber)
- 1/2 bolli hrásykur
- 2 msk sítrónusafi
- 1/2 bolli vatn
- 1 vanillustöng
Aðferð: Kljúfið vanillustöngina og skafið fræin innan úr henni. Setjið allt innihaldið ásamt vanillustönginni í pott og leyfið suðunni að koma upp. Lækkið þá hitann og leyfið sósunni að sjóða við vægan hita, samt þó þannig að ”bubbli” í vökvanum í um það bil 25 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað aðeins og vökinn minnkað um ca. 1/3. Ég hef hitann stilltan á 4 af 9 eftir suðan hefur komið upp. Hellið sósunni í krukkur og kælið. (Ef þið viljið ekki hafa berin saman við sósuna er gott að sigta hana gegnum frekar gróft sigti). Geymist í ísskáp í lokaðri krukku.
Skildu eftir svar