Nýju þættir Nigellu, Nigellissima hafa átt hug minn allan í vetur. Það sem konan töfrar fram girnilegar kræsingar og það auðvitað fyrirhafnarlaust með bros og vör eins og hennar er von og vísa. Súkkulaði kaka með ólífuolíu hefur því verið dálítið lengi á ”to do” listanum mínum yfir nýjungar til að prófa í eldhúsinu. Kakan er dásamleg. Ég viðurkenni alveg að ég bjóst ekkert við neinni flugeldasýningu enda kakan einföld og hráefnin tiltölulega fá. Ég hafði rangt fyrir mér því þetta var flugeldasýning. Einstaklega létt og mjúk, djúsí kaka með fullkomnu súkkulaðibragði og flauelsmjúk. Kakan er líka glútenlaus sem gleður eflaust einhverja. Prófið þessa himnesku köku og látið sannfærast.
Súkkulaðikaka með ólífuolíu: (Uppskrift úr bókinni Nigellissima)
- 50 gr gott dökkt kakó
- 125 ml sjóðandi heitt vatn
- 150 ml ólífuolía
- 200 gr sykur
- 3 egg
- 2 tsk vanilluextract
- 150 gr malaðar möndlur eða möndlumjöl (má líka nota 125 gr hveiti í staðin)
- 1/2 tsk matarsódi
Aðferð: Byrjið á að hita ofn í 160 gráður með blæstri annars 180 gráður. Setjið kakóið í skál og hellið heita vatninu yfir. Hrærið þar til vel blandað saman. Þeytið egg, sykur og ólífuolíu saman í a.m.k 5 mínútur með rafmagnsþeytara eða í hrærivél þar til blandan er þykk og aðeins loftkennd. Hellið kakóblöndunni saman við og hrærið vel saman. Setjið því næst möndlumjölið og matarsódann og blandið öllu vel saman. Hellið í smurt laustbotna form og bakið í 40-45 mínútur.
Formið sem ég notaði var 23 cm. Athugið að deigið er mjög blautt svo gott getur verið að klæða formið að utan með álpappír svo það leki ekki. Athugið að kakan á að vera dálítið blaut í miðjunni og lyftir sér ekki mjög mikið. Látið kökuna kólna í ca. 30 mínútur og takið hana svo úr forminu og setjið á disk. Ég bræddi svo saman 50 gr af suðusúkkulaði og 1 msk af ólífuolíu og hellti yfir.
Skildu eftir svar