Enn einu sinni fær kaldur afgangs kjúklingur yfirhalningu í eldhúsinu. Að þessu sinni umbreyttist kjúllinn í þessar dásamlegu enchiladas með mildri, sætri kókos chili sósu. Þetta er svona ekta föstudags- matarboðsréttur sem allir elska. Einfaldur og sérstaklega bragðgóður. Ég ætla ekkert að hafa fleiri orð um þetta, nema bara hvetja ykkur til að prófa, þessi er allavega á uppáhaldslistanum á mínu heimili!
Sweet chili kjúklinga enchiladas:
- 1 pakki heilveiti tortilla kökur, 8 stk
- 1 eldaður kjúklingur úrbeinaður og rifinn niður (líka hægt að nota 3 eldaðar kjúklingabringur)
- 1 dós kókosmjólk
- 4 – 5 msk sweet chili sósa + meira eftir smekk
- 1/2 kjúklingateningur eða 1 tsk kjúklingakraftur
- 1 dós philadelphia light rjómaostur
- 3 msk sýrður rjómi
- 5 vorlaukar, smátt saxaðir
- Góð handfylli ferskt kóríander, saxað smátt
- Rifinn ostur eftir smekk
- 2 avocado, skorin í teninga
Aðferð: Hitið ofn í 180 gráður með blæstri, annars 200 gráður. Rífið kjúklingakjötið af beinunum og skerið það frekar smátt. Setjið kókosmjólkina, sweet chilli sósu og kjúklingatening í pott og hitið þar til suðan kemur upp. Leyfið að malla við hægan hita í 1-2 mínútur. Slökkvið undir og setjið til hliðar. Hrærið saman rjómaostinum og sýrða rjómanum (líka gott að skipta rjómaostinum út fyrir Kotasælu). Takið tortillaköku, smyrjið ca. 2 msk af rjómaostablöndunni á kökuna, dreifið 2-3 msk af kjúkling yfir, smá vorlauk og kóríander. Setjið um 1 msk af rifnum osti yfir og smá sweet chilli sósu. Rúllið tortillakökunni upp og endurtakið þar til kjúklingurinn og heilhveititortillurnar eru búnar. Skiljið smá vorlauk og kóríander eftir til að strá yfir þegar rétturinn er tilbúinn. Leggið rúllurnar í eldfast mót og hellið þá sweet chilli kókosmjólkinni úr pottinum yfir. Stráið rifnum osti yfir og bakið í 15 mínútur. Dreifið kóríander, vorlauk, avocado teningum og smá sweet chilli sósu yfir og berið fram.
Skildu eftir svar