Créme brulée er einn af mínum allra uppáhalds eftirréttum, ég kikna í hnjánum þegar ég smakka vel heppnað brulée. Ég verð líka frekar sár þegar veitingastaðir bjóða uppá glataða útgáfu af þessum dásamlega rétti, það hefur sem betur fer ekki oft gerst. Hingað til hef ég nefnilega bara smakkað réttinn á veitingastöðum og talið sjálfri mér trú um að réttinn væri flókið að framkvæma og best að láta fagfólk um þá aðgerð. Það var mikill misskilningur. Þetta créme brulée geta allir gert og það þarf engin sérstök tól eða logsuðutæki við eldamennskuna. Ég notaði bara grillið í ofninum til þess að bræða sykurinn og það heppnaðist ljómandi vel. Það er nauðsynlegt! að bera créme brulée fram með stökkri sykurskel á toppnum. Annars er þetta bara ónýtt. Það þarf að vera hægt að banka létt í skelina með skeið án þess að hún brotni, svo brýtur maður sér leið í gegn og uppsker dásamlegan mjúkann eggjabúðinginn með stökkri karamellunni.
Hvítsúkkulaði Créme Brulée (fyrir 4-5)
- 500 ml rjómi
- 75 gr hvítt súkkulaði
- 1 vanillustöng
- 1,5 msk sykur (og meira ofan á)
- 5 eggjarauður
- 5-6 tsk hrásykur
Aðferð: Hitið ofn í 150 gráður með blæstri. Kljúfið vanillustöngina og skafið fræin innan úr. Setjið stöngina og fræin í pott ásamt rjómanum og súkkulaðinu. Hitið við meðalhita og pískið saman þar til súkkulaði er alveg bráðnað og rjóminn orðinn vel heitur en passið að láta hann ekki sjóða. Takið af hitanum og leyfið aðeins að rjúka. Pískið eggjarauðurnar og sykurinn saman þar til eggjarauðurnar verða aðeins ljósari. Hellið heitri rjómablöndunni smátt og smátt saman við eggin og pískið á meðan. Byrjið á að hella um 1 dl af blöndunni saman við eggin og blandið vel saman og hellið restinni saman við í smáum skömmtun. Þetta er gert til þess að eggjarauðurnar eldist ekki þegar heitur rjóminn kemur saman við. Hellið því næst blöndunni í gegnum sigti og í könnu eða ílát sem er þægilegt að hella úr. Hellið blöndunni í lítil form og setjið í eldfast mót. Hellið sjóðandi heitu vatni í mótið þannig að það nái upp að miðjum litlum formunum. Bakið í um 20 mínútur. Blandan mun líta út fyrir að vera ennþá fljótandi innst í miðjunni þegar þið takið þetta úr ofninum. Þannig á það að vera. Kælið í a.m.k. 4 klst í ísskáp. Áður en þið berið réttinn fram hitið grillið í ofninum á hæstu stillingu. Stráið þá rúmlega 1 tsk af hrásykri jafnt yfir hvern og einn eggja-rjómabúðing. Setjið undir grillið ofarlega í ofninum og fylgist vel með. Sykurinn á að vera farinn að bubbla og koma dökkbrúnar doppur í sykurskelina. Takið úr ofninum og leyfið að kólna í 5 mínútur þannig að sykurskelin nái að harðna. Berið fram með ferskum berjum og njótið!