Ég lá í flensu á dögunum og til að stytta mér stundir datt ég inn í Great British Bakeoff á Stöðtvö Maraþon. Þvílíkir snilldar þættir! Fullkomið raunveruleikasjónvarp, samt laust við allt dramað sem fylgir oft svipuðum bandarískum þáttum. Ég mæli eindregið með þeim. Hið óhjákvæmilega þegar ég horfi á svona þætti er samt að eftir hvern þátt fyllist ég mikilli löngun í að baka.. Sem hefur vissulega sína kosti og galla. En þessi dásamlega mjúka eplakaka fékk semsagt innblástur frá þáttunum góðu, og því tilefni að maðurinn minn átti afmæli. Uppskriftin er upprunalega frá Mary Berry, dómara í British Bakeoff, og Helgu Sig þeirra Breta, en með smá tilfærslum. Vona að þið prófið og njótið.
Epla skúffukaka
- 400 gr græn epli, skræluð og skorin í þunnar sneiðar (ég notaði tvö stór epli)
- Safi úr hálfri sítrónu
- 2 msk kanilsykur
- 250 gr mjúkt smjör
- 200 gr ljós púðursykur (eða hvítur sykur og dökkur púðursykur til helminga)
- 4 egg
- 250 gr hveiti
- 2 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 1 tsk kanill
- 1 dl mjólk
Aðferð: Hitið ofn í 170 gráður með blæstri. Setjið eplasneiðarnar í skál, kreistið sítrónusafa yfir þær og stráið einni matskeið af kanilsykri yfir. Setjið til hliðar. Þeytið saman smjör og sykur þar til ljóst og létt og bætið eggjunum einu í einu út í og þeytið vel á milli. Pískið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og kanil og bætið út í smjörblönduna ásamt mjólkinni. Hrærið vel saman en gætið þess að hræra ekki of lengi.
Smyrjið skúffukökuform að innan eða þekjið með smjörpappír. Setjið helminginn af deiginu í botninn og dreifið vel út því, raðið helmingnum af eplasneiðunum yfir. Setjið svo restina af deiginu yfir eplin og dreifið vel úr. Raðið að lokum eplum yfir og stráið 1 msk af kanilsykri yfir allt. Bakið í 30-40 mínútur eða þar til prjóni stungið í miðja kökuna kemur hreinn upp og eplin eru orðin mjúk. Sigtið dálítinn flórsykur yfir kökuna þegar hún hefur kólnað aðeins, berið fram volga með þeyttum rjóma.
Ingibjörg
Get hvergi séð sjálfa uppskriftina, þ.e. hvað mikið af hverju hráefni.