Gleðilegt sumar! Ég gerði þessa dásamlegu tertu fyrir Gott í matinn vefinn fyrir páska og tel fulla ástæðu til að birta hana hér líka. Hún á fullt erindi við hvert tilefni. Uppskriftin hefur fylgt mér lengi og ég hef birt áður aðra útgáfu af henni hér inni, þá með jarðarberjarjóma.
Uppskriftin sem ég gef hér er fyrir tveggja hæða tertu, ef þið viljið gera stóra þriggja hæða tertu er uppskriftin margfölduð með 1,5 og bætt aðeins við rjómann sem fer á milli.
Döðlu- og súkkulaðibotnar:
4 stk. | egg |
100 g | púðursykur |
100 g | sykur |
200 g | döðlur, saxaðar |
200 g | súkkulaði, saxað |
125 g | hveiti |
Bananarjómi:
4 dl | rjómi frá Gott í matinn |
1 stk. | stór banani, stappaður |
Súkkulaðikrem:
150 g | suðusúkkulaði |
1 dl | rjómi frá Gott í matinn |
1 msk. | síróp |
Aðferð:
Döðlu- og súkkulaðibotnar
- Ofn hitaður í 180 gráður með blæstri. Tvö hringlaga form smurð vel og bökunarpappír settur í botninn.
- Döðlur og súkkulaði smátt saxað og hveitinu blandað saman við.
- Egg og sykur þeytt mjög vel saman þar til blandan er ljós og létt.
- Hveiti, súkkulaði og döðlum blandað varlega saman við eggjablönduna með sleif.
- Hellt í formin og bakað í 15-20 mínútur.
- Kælt aðeins, svo losað úr formunum og svo kælt alveg.
Bananarjómi
- Leggið annan botninn á kökudisk.
- Þeytið rjómann og blandið stöppuðum banananum saman við rjómann.
- Smyrjið ofan á botninn og leggið hinn botninn ofan á.
Súkkulaðikrem
- Bræðið allt saman í potti við vægan hita.
- Kælið aðeins og hellið svo yfir.
- Dreifið úr kreminu þannig að það leki aðeins niður hliðarnar á tertunni.
- Skreytið með litlum páskaeggjabrotum og liltu súkkulaðifylltueggjunum frá Cadbury.
- Geymið tertuna í ísskáp í 2-3 klst. áður en hún er borin fram.
Elísabet Árny Tyrfings
Líst vel á þetta
Heiðrún Finnbogadóttir
Ég hafði þessa á páskunum, að vísu bara 2ja hæða en hún sló í gegn!
Takk fyrir að deila uppskriftinni.
helenagunnarsd
En gaman! Takk fyrir að deila.