Ótrúlega bragðgott kjúklingasalat sem er eitthvað svo sumarlegt. Það er um að gera að grilla kjúklinginn til að toppa stemmninguna. Sumar á diski! –
Til að gera salatið ketó/LKL vænt má vel skipta hunanginu út fyrir sykurlaust síróp og skipta brauðteningunum út fyrir t.d. ristaðar pekanhnetur, og svo annað hvort sleppa mangóinu eða minnka það.
Marinering og sósa:
½ dl hunang
½ dl dijon sinnep
½ dl ólífuolía
2-3 tsk chillimauk (t.d. Sambal oelek) eða 1 rauður hakkaður chilli
1 tsk sjávarsalt
Safi úr einni límónu
2 kjúklingabringur
Brauðteningar
2 vænar sneiðar súrdeigsbrauð
3 msk smjör og 1 msk ólífuolía
Salt og pipar
Salat
Einn poki salatblanda eða annað salat eftir smekk
1 mangó
1 lárpera
Kirsuberjatómatar
Fetaostur
Aðferð
Pískið saman öllu sem fer í marineringuna. Leggið kjúklingabringurnar á disk, takið fjórar matskeiðar af sósunni og hellið yfir bringurnar. Látið marinerast í ísskáp í 2 klst eða á borði í 30 mínútur. Geymið restina af sósunni til að hella yfir salatið.
Rífið brauðið í litla teninga. Bræðið smjörið á pönnu og hitið ásamt ólífuolíunni. Steikið brauðteningana þar til stökkir og kryddið með salti og pipar. Færið yfir á disk með eldhúspappír og látið bíða.
Steikið eða grillið kjúklingabringurnar þar til eldaðar í gegn. Skerið allt sem á að fara í salatið niður og leggið á stórt fat. Sneiðið að lokum kjúklinginn í þunnar sneiðar, dreifið brauðteningunum yfir ásamt fetaosti og hellið sósu eftir smekk yfir allt saman. Berið fram strax.