Ég er á einhverju miklu pestó æði þessa dagana. Bjó til basil og spínat pestó um daginn og bjó svo nýlega til þetta frekar nýstárlega brokkolí og klettasalat pestó. Mér finnst það ofboðslega gott og nota það á ýmislegt og ekki finnst mér verra að það sé stútfullt af brokkolí hollustu. Í gær var ég til dæmis með grillaða hamborgara og setti þetta ofan á þá, ég nota þetta líka ofan á hrökkbrauð, þetta er gott með salati, ofan á ofnbakaðar eða grillaðar kjúklingabringur og fisk og svo væri vel hægt að hræra þessu saman við pasta. Möguleikarnir eru endalausir. Þetta er frekar stór uppskrift. Mér finnst ágætt að búa til dálítið af þessu og eiga í ísskáp. Geymist vel í 10 daga. Svo er alltaf hægt að gleðja einhvern með krukku af þessu góðgæti.
Brokkolí pestó:
Þetta eru um það bil hlutföllin eins og ég gerði það. Pestó er ekki svo heilagt svo um að gera að smakka sig áfram.
- 1 vænt brokkolí höfuð, stilkurinn skorinn frá og skorið í bita
- 1 lúka klettasalat (má sleppa, ég átti það til og notaði þess vegna, mætti líka nota t.d basil)
- 1/2 Parmesan ostur eða Grana padano (ca. 100 grömm)
- 50 grömm furuhnetur
- 50 grömm valhnetukjarnar
- 50 grömm möndlur
- (Ég notaði þær hnetur sem ég átti, líka fínt að nota bara eina tegund eða það sem til er í skápunum)
- 1-2 hvítlauksrif
- 3-4 dl ólífuolía
- Safi úr 1/2 sítrónu
- Salt og pipar
Aðferð: Byrjið á að setja parmesan ostinn í litlum bitum í matvinnsluvélina og tætið hann smátt niður. Setjið hneturnar saman við ásamt brokkolíinu, klettasatinu og hvítlauknum og látið ganga þar til þetta er nokkuð smátt saxað. Hellið þá ólífuolíunni og sítrónusafanum út í og smakkið til með salt og pipar. Setjið eins mikla olíu og ykkur finnst þurfa, það er bara smekksatriði. Setjið í krukkur og geymið í ísskáp í allt að 10 daga.