• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Brúnkur uppskrift

Brúnkur Nigellu

janúar 20, 2013 by helenagunnarsd 8 Comments

IMG_0144Ég á orðið ágætis safn matreiðslubóka, svona á minn mælikvarða allavega. Nokkrar þeirra eru í miklu uppáhaldi hjá mér og ég veit að ég get gripið til þeirra ef enga áhættu á að taka og útkoman þarf að vera fullkomin. Bók Nigellu Lawson, How to be a domestic goddess, er sannarlega ein þeirra, enda titillinn einn og sér einstaklega aðlaðandi. Hver vill ekki vera gyðja í eldhúsinu eins og Nigella? Ég hef ekki búið til mjög margar uppskriftir úr henni en þær sem ég hef prófað eru dásamlegar og oftast þannig að þær hafa verið gerðar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Ein þeirra uppskriftin hennar af brúnkum (brownies). IMG_0050IMG_0057Nigella byrjar uppskriftina á því að lýsa yfir furðu sinni á því af hverju í ósköpunum fólk er ekki bara alltaf að baka brúnkur, svo auðveldar og gómsætar séu þær… Sennilegasta ástæða þess að fólk er ekki alltaf að baka hennar útgáfu af brúnkum er samt trúlega sú að í uppskriftinni er sko ekki skorið við nögl! Frekar en í öðrum uppskriftum frá Nigellu. En maður minn hvað brúnkurnar eru líka góðar og mega líka vera það miðað við innihaldið. Sex egg, 375 grömm súkkulaði og jafn mikið af smjöri og já HÁLFT kíló af sykri vill hún að við setjum í herlegheitin. Ég get alveg fyrirgefið henni ýmislegt en ég gat ómögulega fengið það af mér að setja hálft kíló af sykri í kökurnar svo ég minnkaði magnið umtalsvert en þær voru samt mjög sætar.. já og góðar já já.IMG_0052Nigella tileinkar súkkulaði heilan kafla í bókinni sinni og byrjar þann kafla á fróðlegum upplýsingum um þessar guðaveigar á gylltum dásamlegum blaðsíðum, allt súkkulaðinu til heiðurs.

Uppskriftin sem um ræðir er mjög stór og auðveldlega hægt að helminga hana. Það nást alveg 48 meðalstórir brúnkubitar úr henni. Uppskriftin passar vel í venjulegt skúffukökuform og galdurinn er að baka kökuna alls ekki of lengi. Mín var sennilega svona þremur mínútum of lengi í ofninum og örlítið brennd í köntunum, ég skar kantana af og setti súkkulaðikrem ofan á, sem er auðvitað bara bruðl en alveg ofsalega gott. Ég get þó alveg sagt kinnroðalaust að þetta ERU bestu brúnkur sem ég hef smakkað, Nigella kann svona lagað.

Uppskrift: (Aðeins breytt uppskrift frá Nigellu)

  • 375 grömm dökkt súkkulaði
  • 375 grömm smjör
  • 6 egg
  • 350 grömm hrásykur
  • 1 msk vanilluextract
  • 225 grömm fínt spelt eða hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 300 grömm grófsaxaðar valhnetur (þessu má líka sleppa eða skipta út fyrir öðruvísi hnetur, mér finnst valhneturnar samt eiginlega ómissandi..) 🙂

Súkkulaðikrem:

  • 150 grömm súkkulaði
  • 3 msk smjör
  • 1 msk sýrópPage_1

Aðferð:

Ofn hitaður í 170 gráður með blæstri. Smjör og súkkulaði brætt saman við vægan hita í potti. Egg, sykur og vanilla hrærð létt saman með þeytara í frekar stórri skál, (ekki rafmagnsþeytara, þetta á ekki að verða létt og ljóst). Súkkulaðibráðinni leyft að kólna aðeins og svo blandað saman við með þeytaranum. Hveitinu, saltinu blandað saman við með sleif og síðast hnetunum. Hellt í smurt skúffukökuform með bökunarpappír á botninum sem nær upp með hliðunum, þá er hægt að kippa kökunni auðveldlega upp úr mótinu þegar hún er tilbúin. Bakað í um það bil 25 mínútur. Ég bakaði mína óvart í 30 mínútur og fannst það of mikið, ekki vera eins og ég. Hún á að vera blaut í miðjunni. Kakan þarf að kólna nánast alveg áður en hún er skorin, a.m.k í klukkutíma. Þegar kakan er kólnuð er innihaldið í kremið brætt við vægan hita í potti og því svo smurt yfir kökuna.

IMG_0137

Filed Under: Eldhúsperlur, Uncategorized Tagged With: Bestu brownies, Bestu brúnkurnar, Brownies stór uppskrift, Brownies uppskrift, Brúnkur, Brúnkur uppskrift, Nigellu brownies

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme