Ég held að ég geti sagt að eftirfarandi uppskrift (sem er eiginlega ekki hægt að kalla uppskrift) sé einn af mínum uppáhaldsréttum. Svona þegar kemur að einfaldleika, góðu hráefni og fljótlegheitum. Þetta er samsetning sem getur ekki klikkað. Það er svo mikilvægt þegar svona fá hráefni eiga að fá að standa fyrir sér sem forréttur, máltíð, smáréttur eða meðlæti, að allt sé gott sem í réttinn fer. Mozarella osturinn þarf að vera ferskur, mér finnst þessi íslenski alveg afbragðsgóður en vilji menn vera flottir á því veit ég að ítalska sælkeraverslunin Piccolo Italia á Laugaveginum selur stundum ekta ítalskan buffalo mozarella. Það er aldrei að vita nema maður skelli sér á svoleiðis einn daginn.
Nú og svo þurfa tómatarnir að vera eldrauðir og ekki kaldir úr ísskáp. Það er langbest – eiginlega skylda, að geyma tómata alltaf við stofuhita. Ég nota tómata það mikið að ég er með stóra skál við hliðina á eldavélinni sem er oftast full af tómötum. Þegar ég kaupi nýja tómata set ég þá neðst í skálina og nota þá sem eldri eru. Ég geymi kirsjuberja-, piccolo-, plómutómata og ”venjulega” íslenska tómata við þessar aðstæður, sumsé alla tómata. Þeir eru svo margfalt betri á bragðið fái þeir að þroskast og roðna við stofuhita. Það er svo alveg klassískt að nota basil í svona tegund af salati, ég geri það oftast en í þetta skiptið notaði ég glænýtt heimaræktað klettasalat sem mér finnst líka passa vel í salatið. Mér þykir svo best að hella yfir góðri jómfrúar ólífuolíu, balsamikediki og strá svo yfir sjávarsalti og nýmöluðum pipar. Einfaldleikinn er oft svo dásamlegur!
- 1 kúla mozarella ostur
- 2-3 vel þroskaðir fremur stórir tómatar
- Nokkur blöð af klettasalati eða basil
- 2 msk ólífuolía
- 1 msk balsamikedik
- Sjávarsalt og pipar
Aðferð: Mozarella og tómatar skornir í jafn þykkar sneiðar. Klettasalatið lagt á disk, tómata og mozarellasneiðum raðað ofan á til skiptis. Ólífuolíu og balsamikediki sáldrað yfir ásamt pipar og salti. Borið fram strax. Stundum ber ég salatið fram sem fljótlega máltíð, þá hef ég gjarnan með því hráskinku og avacadosneiðar – það er líka mjög gott.