• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Fiski tacos

Kryddaðar bleikju tacos með stökku hrásalati og límónu sósu

júlí 7, 2014 by helenagunnarsd Leave a Comment

min_IMG_6070

Mikið var ég yfir mig ánægð með þessa máltíð. Þetta er sko kvöldmatur að mínu skapi. Einfalt, bragðmikið, tekur enga stund að elda, ferskt, hollustan í fyrirrúmi og allir á heimilinu vilja borða. Það væri líka gott að bera þetta fram með stökkum taco skeljum en okkur þykir betra að nota þær mjúku en steikja þær dálítið áður á þurri pönnu svo þær taki á sig smá lit. Ég hvet ykkur til að prófa að matreiða fisk með þessum hætti og er þess næstum fullviss að ungir sem aldnir kunna að meta þessháttar fiskmáltíð. min_IMG_6072Það má nota hvaða fisk sem er, svo lengi sem hann er spriklandi nýr. Ég steikti roðið á bleikjunni mjög vel, reif það svo niður og bar fram með vefjunum. Syni mínum þykir það eins og hið besta snakk og svo er voða gott að finna knassandi stökkt og bragðmikið roðið með fiskinum í vefjunum. min_IMG_6065

Kryddaðar bleikju tacos með stökku hrásalati (fyrir 3):

  • 700 gr bleikjuflök, beinhreinsuð
  • Paprikuduft (gott að nota reykta eða sterka papriku ef þið eigið)
  • Sítrónupipar
  • Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
  • 1 msk smjör
  • Hrásalat:
  • 1/2 lítið iceberg höfuð smátt saxað
  • Góð handfylli saxað kóríander
  • 4 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar
  • 2 msk hvítvínsedik eða borðedik
  • 2 tsk sykur/hrásykur/hunang eða önnur sæta
  • Sjávarsalt eftir smekk
  • Límónusósa:
  • 1 dós sýrðu rjómi
  • 2 tsk majónes
  • Börkur og safi af hálfri límónu
  • Smá salt og smá sykur eða önnu sæta eftir smekkmin_IMG_6071

Aðferð: Byrjið á að gera sósuna. Hrærið öllu saman í skál og látið standa á meðan restin af réttinum er gerð. Blandið öllu í hrásalatið saman, hellið ediki, sykri og salti yfir og blandið vel saman. Smakkið ykkur áfram. Kryddið fiskinn mjög vel báðu megin með paprikudufti, sítrónupipar, sjávarsalti og pipar. Hitið grillpönnu eða venjulega pönnu á meðalhita og bræðið um 1 msk af smjöri. Steikið fiskinn fyrst á roðhliðinni í 4-5 mínútur eða þar til roðið er vel stökkt. Snúið fiskinum þá við, hækkið aðeins hitann og steikið áfram í 1-2 mínútur. Takið fiskinn af, setjið á disk og berið fram með þurrsteiktum tortillavefjum eða taco skeljum, límónusósunni, hrásalatinu, límónubátum.. og e.t.v chillipipar ef þið viljið auka hita 🙂min_IMG_6076

 

 

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Fiski taco, Fiski taco uppskrift, Fiski taco uppskriftir, Fiski tacos, Fiski tortillur, Heimagerðar fiski tacos

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme