Mikið var ég glöð í morgun yfir því að það væri kominn febrúar! Komandi mánuður á líka eftir að verða alveg einstaklega skemmtilegur hjá okkur fjölskyldunni, afmæli og ýmislegt fleira skemmtiegt á döfinni. Ég byrjaði daginn á þessum dásamlega græna drykk sem er í uppáhaldi hjá mér í augnablikinu. Fæ yfirleitt æði fyrir einhverjum einum drykk og blanda mér hann þá í einhverja mánuði áður en ég dett inn á einhvern nýjan til að fá æði fyrir.
Þessi drykkur stendur algjörlega fyrir sér sem máltið, í þessu tilfelli morgunmatur. Ég set í hann hreint mysuprótein sem ég kaupi í Lifandi markaði en það fæst örugglega í einhverjum öðrum heilsubúðum. Ég hef prófað að gera svona drykki án próteins en þá finnst mér þeir ekki geta staðið sem máltíð þar sem maður er oftast orðinn svangur aftur eftir klukkutíma. Það mætti alveg prófa að skipta mysupróteininu út fyrir t.d hreint skyr ef manni finnst það gott. Drykkurinn er allavega afar hressandi og sennilega líka flensufælandi.
Spínathressing:
- 1-2 dl hreinn eplasafi
- 1-2 dl kókosvatn eða vatn
- 1 væn lúka skolað spínat
- 2 dl frosið mangó
- 1 tsk kókosolía
- 2 msk hreint mysuprótein (eða skyr)
- 2 tsk rifið engifer
Allt sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. Ef ykkur finnst drykkurinn of þykkur má bæta út í hann meiri vökva, það fer auðvitað bara eftir smekk.