Þrátt fyrir að eiga hvorki frystiskáp né frystikistu eins og sönnum húsmæðrum sæmir, heldur einungis þrjár nettar frystiskúffur, tekst mér alltaf að gleyma hvað ég á í frystinum. Þessar þrjár skúffur eru eins og svarthol, taka endalaust við og einhvernveginn fer ekkert upp úr þeim sem á annað borð lendir í þeim. Kannski smá ýkjur en þetta er samt upplifunin. Ég hugsa að við gætum sleppt því að fara í matvörubúð í tvær vikur og hefðum samt nóg af kjöti, fiski og öðru góðgæti. Ég sumsé hef verið að grafa mig í gegnum frystiskúffurnar og elda úr því sem þar er til, meðal annars lumaði ég á poka af ungnautagúllasi frá Mýranauti, sem ég hafði steingleymt. Mér er ekki borgað fyrir að auglýsa Mýranaut – en ég verð bara að segja einu sinni enn hvað mér þykir nautakjötið þaðan afburðargott. Fólk með stærri frystigeymslur en ég ætti allavega íhuga að kaupa sér nautakjöt þaðan. Nú, gúllas er þannig biti að hann þolir langa eldun afskaplega vel. Ég mæli því ekki með því að elda þessa súpu í hraði og bera hana á borð hálftíma eftir að þið byrjið að elda. Fyrir mér er sjarminn við gúllassúpur lungamjúkt kjöt og bragð sem hefur fengið að malla lengi við hægan hita. Það sem mér finnst sniðugt að gera er að útbúa súpuna daginn áður en hún á að vera í matinn, leyfa henni að malla í hálftíma, slökkva svo undir henni og láta hana kólna og geyma svo í ísskáp þar til maður ætlar að nota hana. Þá er gott að hita hana upp við vægan hita og leyfa henni að malla í klukkustund. Þetta sparar allavega smá tíma ef maður getur ekki með góðu móti látið súpuna malla í þá 2-4 tíma sem hún á skilið til að verða dásamleg. Þetta þýðir samt ekki að súpan taki langan tíma í undirbúningi, ég hugsa að ég hafi staðið við eldavélina í 20 mínútur, eftir það eldar súpan sig bara sjálf. Þetta er einhver besta gúllassúpa sem ég hef smakkað, virkilega einföld og ekki of mörg hráefni að þvælast fyrir manni.
Matarmikil gúllassúpa (fyrir 4-6)
- 600 gr smátt skorið ungnautagúllas
- 2 msk smjör
- 2-3 laukar, skornir í tvennt og svo sneiðar
- 1/2 chillialdin, fræhreinsaður og skorinn í sneiðar
- Krydd: 1 tsk paprikuduft, 1 tsk timían, 1 tsk cummin
- 1 krukka tómatpassata (Frá Sollu)
- 2 msk tómatpaste
- 1 msk hunang eða önnur sæta
- 1 l vatn – (fer þó aðeins eftir smekk)
- 2 teningar nautakraftur
- 1 stór bökunarkartafla, skorin í teninga
- 1/2 sæt kartafla, skorin í teninga
- 1,5 dl rjómi
- Salt og pipar og fersk steinselja til að strá yfir í lokin
Aðferð: Byrjið á að skera gúllasið í litla bita, mér þykir gúllas oftast í of stórum bitum fyrir svona súpur. Þerrið kjötið vel og kryddið með salti og pipar. Hitið stóran pott við háann hita og bræðið smjörið. Steikið kjötið þannig að það brúnist vel. Færið kjötið svo upp á disk og lækkið hitann. Steikið laukinn í 10-15 mínútur, þannig að hann mýkist vel og taki á sig smá lit. Bætið kjötinu aftur út í ásamt chilli og kryddum og steikið aðeins áfram. Setjið tómatpaste-ið saman við ásamt, kraftinum, tómötunum, hunangi og vatni og hleypið suðunni upp. Flysjið kartöflurnar á meðan suðan er að koma upp og bætið þeim svo út í. Leyfið súpunni að sjóða í 30 mínútur. Lækkið þá hitann, bætið rjómanum út í og smakkið til með salti og pipar. Mér þykir gott að hafa svona súpur dálítið þykkar svo ég stappaði aðeins kartöflurnar í súpunni með kartöflustappara, þannig að sumar voru í bitum og sumar vel stappaðar og þykkja þá súpuna. Leyfið súpunni að malla við vægan hita með loki í 2-4 tíma. Því lengur því betra.