Ég veit ekki alveg hvað gerðist þennan föstudags seinnipart.. Eftir páskasukk, súkkulaði og stórsteikur hef ég tekið þann vinkil að vera eingöngu með létt, hollt og gott fæði. Sem útskýrir ef til vill uppskrifta skort hér á síðunni. En salöt, kjúklingabringur, fiskur, grænmeti og annað léttmeti hafa einkennt matseðil okkar fjölskyldunnar þessa vikuna, sem er bara hið besta mál. Það var svo þar sem ég var nýbúin að sækja þreyttan og dálítið úfinn einkasoninn í leikskólann síðdegis að sá stutti hálf veinaði í aftursætinu: ”mammaaa mig laaangar svo að baka einhverja góða teertu!!”.. Tertu? Sagði barnið tertu? Ekki var móðirin alveg á þeim buxunum að fara að baka tertu svo að við mættumst á miðri leið og ég félst á að baka möffins þegar heim væri komið.
Matarbloggarinn fór þá á flug og fór að hugsa hvaða gómsætu muffins uppskrift hægt væri að baka, slá tvær flugur í einu höggi, baka fyrir barnið og setja einhverja nýja uppskrift hingað inn til að vega upp á móti uppskrifta andleysi síðustu daga. Eftir dálitla umhugsun og þá staðreynd að ég nálgaðist matvörubúðina á ógnarhraða, þurfti að taka ákvörðun. Hindberja, rjómaosta muffins skyldi það verða. Óþarfa fínheit myndi þá kannski einhver segja, en þetta eru afar einfaldar kökur að gera þrátt fyrir að líta kannski út fyrir að vera flóknar. Maður þarf ekki einu sinni hrærivél. Útkoman var alveg yndislegar, mjúkar muffins. Ostakökudeigið og hindberin smellpassa saman og hnetumulningurinn á toppnum gefur góða, stökka áferð. Það má svo að sjálfsögðu skipta hindberjunum út fyrir önnu ber, til dæmis bláber eða jarðarber. Hindberin fannst mér hins vegar alveg svínvirka í þetta skiptið. Ég mæli sannarlega með því að skella í þessar gómsætu muffins um helgina og gleðja heimilisfólkið í leiðinni!
Hinberjamuffins með rjómaostafyllingju og hnetumulningi:
Í rjómaostakremið:
- 200 gr rjómaostur
- 2 msk sýrður rjómi
- 1 tsk vanilluextract
- 4 msk flórsykur
Aðferð: Öllu blandað saman með písk eða handþeytara þar til komið er slétt rjómaostakrem. Sett til hliðar.
Í muffins (bollamálið mitt er 2.4 dl):
- 2 bollar hveiti eða fínmalað spelt
- 1/2 bolli hrásykur
- 2 tsk vínsteinslyftiduft (eða 1 tsk venjulegt)
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 1/3 bolli bragðlítil olía
- 1 bolli ab mjólk, súrmjólk eða hrein jógúrt
- 1 stórt egg
- 1 tsk vanilluextract
- Rifinn börkur af 1/2-1 sítrónu (fer eftir stærð)
- 1 1/2 bolli frosin hindber+1 msk hveiti
Aðferð: Byrjið á að blanda saman öllum þurrefnunum (hveiti, sykri, lyftidufti, matarsóda og salti). Hrærið eggi, olíu, súrmjólk, vanillu og sítrónuberki saman í annarri skál og hellið saman við þurrefnin. Hrærið þessu varlega saman, rétt svo þannig að þetta blandist. Alls ekki ofhræra. Dustið hveiti yfir hindberin. Það kemur í veg fyrir að þau sökkvi á botninn þegar kökurnar eru bakaðar. Bætið hindberjunum svo út í og blandið þeim varlega saman við.
Hnetumulningur:
- 2 msk kalt smjör
- 2 msk hveiti eða fínt spelt
- 2 msk púðursykur
- 4 msk muldar valhnetur
Aðferð: Blandið öllu saman og vinnið saman með fingrunum þar til mulningur myndast og smjörið er samlagað þurrefnunum.
Samsetning: Hitið ofn í 180 gráður með blæstri. Pappírsklæðið um það bil 18 álmuffinsform og setjið um 2 msk af hindberjadeiginu í botninn á hverju formi. Setjið því næst um 1 msk af rjómaostakreminu ofan í og svo aftur 1 msk af hindberjadeiginu. Toppið hverja köku með 1 tsk af hnetumulningnum. Bakið í 18-20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna í forminu í um það bil 20-30 mínútur áður en þið takið þær upp úr.
Njótið!