Ég hef verið áskrifandi að tímaritinu Good Food í nokkur ár og haft mikið gaman að. Þetta tímarit er gefið út af BBC og hefur sannarlega afsannað þá kenningu að bretar séu lélegir kokkar. Ég ákvað þó núna um áramótin að hætta áskrift að blaðinu þar sem mér fannst uppskriftirnar orðnar heldur einsleitar og ég var bara eiginlega komin með leið á þessu blaði. Ég leita því núna logandi ljósum að nýju tímariti til að gerast áskrifandi að, því þó það sé gaman að fara út í bókabúð og velja sér matar tímarit jafnast ekkert á við að fá eitt brakandi nýtt sent í pósti einu sinni í mánuði. Það er auk þess ódýrara en að kaupa sér blað mánaðarlega. Ég er að hugsa um að gerast áskrifandi að einu uppáhalds tímaritinu mínu Bon Appetit, ætli ég láti ekki bara slag standa..
Ég var sumsé að fletta í gegnum gömul Good Food tímarit um helgina og rakst oftar en einu sinni á einhverskonar hunangs- sinneps- sítrónu ofnbakaða kjúklingabita. Það varð því úr að ég varð að elda eitthvað slíkt í kvöldmat á þessu bjarta og fallega sunnudagskvöldi. Rétturinn var alveg frábær og bragðið unaðslegt. Virkilega góður og fljótlegur réttur sem ég bar fram með grófri kartöflumús og góðu grænu salati.
Uppskrift:
- 8 kjúklingalæri
- 2 msk ólífuolía
- 3 msk grófkorna sinnep
- 2 msk hunang
- 1 sítróna
- 1 hvítlauksrif
- Salt (ca. 1 tsk gróft sjávarsalt) og pipar
Aðferð: Hitið ofn í 180 gráður með blæstri. Byrjið á að snyrta kjúklingalærin og skera frá umfram fitu. Setjið lærin í rennilása plastpoka. Setjið olíu, sinnep og hunang í skál. Rífið börkinn af 1/2 sítrónunni og kreistið allann safann úr henni út í skálina. Rífið hvítlauksrifið eða smátt saxið það saman við. Kryddið með salti og pipar. Hellið helmingnum af marineringunni yfir lærin í pokanum og veltið þeim vel upp úr vökvanum. Leyfið að standa við stofuhita í um 15 mínútur.
Hellið kjúklingalærunum í eldfast mót og látið skinn hliðina snúa niður. Setjið inn í ofn í 10 mínútur. Takið þá úr ofninum og snúið lærunum við. Hellið restinni af marineringunni yfir kjúklinginn og bakið í 20 mínútur til viðbótar. Ef til vill má auka hitann í 220 gráður undir lokin til að fá stökka húð á kjúklinginn. Berið fram með kartöflumús, salati og umfram sósunni sem kemur af kjúklingnum og marineringunni.. Þetta var alveg ofboðslega gott !