Rösti (borið fram: rrosscchhtí) er upprunalega svissneskur réttur sem samanstendur af rifnum kartöflum. Hann er oft borinn fram með góðum osti, kjöti, grænmeti eða t.d spældu eggi. Ég smakkaði þennan rétt fyrst í Sviss þegar ég var lítil stelpa. Ég er kannski með óeðlilega gott minni þegar kemur að mat, en ég man nánast eins og það hafi gerst í gær þegar við fjölskyldan fóru á svissneskan veitingastað í fallegum smábæ í Sviss sem leit út eins og á póstkorti, og fengum þar ómótstæðilega gott rösti. Síðan þá hef ég bara ekki fengið jafn gott rösti. Það er nefnilega smá kúnst að gera þennan kartöflurétt almennilega.. eftir smá rannsóknarvinnu ákvað ég að gera tilraun heima sem heppnaðist mjög vel. Ég myndi halda eftir þetta grúsk mitt, að lykillinn að því að gera gott rösti sé að léttsjóða kartöflurnar og leyfa þeim að kólna áður en þær eru rifnar niður og steiktar, og já eins og galdurinn að flestu sem er gott, steikja þær upp úr smjöri.
Ég sit einmitt oft uppi með kartöflur sem ég veit ekki hvað ég á að gera við vegna þess að við erum ekkert svo mikið kartöflufólk. Sonur minn er hins vegar forfallinn kartöflu aðdáandi og þess vegna elda ég þær handa honum af og til. Ég verð þó að viðurkenna að ég þarf oftar en ekki að henda kartöflum, sérstaklega ef ég kaupi heilan poka sem inniheldur tvö kíló af blessuðum jarðeplunum. Þetta er því alveg upplögð uppskrift ef þið eigið kartöflur í ísskápnum sem liggja undir skemmdum. Ég er allavega ekki hissa á vinsældum þessa réttar í Sviss og það er langt síðan ég hef eldað jafn ódýran og einfaldan mat sem naut jafn mikilla vinsælda og þessi réttur gerði! Hann sló algerlega í gegn á heimilinu og stendur vel fyrir sér sem kvöldmatur með góðu salati. Það má svo vel skipta kjötinu og ananasnum út fyrir hvaða grænmeti eða annað kjöt sem er. Þetta fer bara eftir því hvað er til í ísskápnum, um að gera að nota það sem til er.
Rösti (fyrir 3 sem aðalréttur):
- 6 meðalstórar kartöflur
- 1/2 laukur
- 2 msk smjör, salt og pipar
- Góð skinka, t.d niðursneiddur hamborgarhryggur.
- Ananashringir
- Rifinn bragðmikill ostur, svissneskur gruyére væri sennilega mest viðeigandi en þar sem erfitt er að fá hann notaði ég íslenska ostinn Tind. Mæli með honum.
Aðferð: Kartöflur settar í kalt léttsaltað vatn og suðan látin koma upp. Ég sauð kartöflurnar í sjö mínútur eftir að suðann kom upp (fer svolítið eftir stærð, þær eiga að vera næstum því mjúkar í gegn, samt ekki alveg). Þá eru þær settar á disk og leyft að kólna alveg. (Þetta er sniðugt að gera t.d að morgni og skella kartöflunum svo inn í ísskáp). Þegar kartöflurnar eru kaldar er ofn hitaður í 200 gráður. Kartöflurnar flysjaðar og svo rifnar með grófu rifjárni. Laukurinn er svo rifinn saman við. Saltað og piprað vel. Bræðið um 1 msk af smjöri á pönnu og hellið kartöflunum á pönnuna.
Mótið köku úr kartöflunum og leyfið að steikjast á meðalhita í um 10 mínútur. Alls ekki hafa of háan hita. Setjið því næst disk ofan á pönnuna og hvolfið kartöflukökunni á diskinn. Setjið aðeins meira smjör, ca. 1 tsk á pönnuna og leyfið að bráðna. Hellið kökunni svo aftur á pönnuna og steikið á hinni hliðinni. Raðið skinkunni, ananas og rifnum osti ofan á og stingið inn í ofn í u.þ.b 10 mínútur. Borið fram með góðu grænu salati og ef til vill smátt söxuðum vorlauk.