Þegar ég var á Flórída fyrir nokkrum árum með foreldrum mínum og manninum mínum (þá kærasta) voru buffaló vængir ósjaldan pantaðir á veitingastöðum. Pabbi og maðurinn minn helltu sér þá gjarnan yfir djúpsteikta vængjastaflana sem voru borðaðir með bestu lyst í miklum hita og raka við klúbbhúsið á golfvellinum og buffaló sósan svo sterk að logarnir stóðu út úr þeim. Okkur mömmu þótti nú stundum alveg nóg um og þrátt fyrir að líka afar vel sterka buffaló bragðið þá þótti okkur þessi villimennska yfir beinunum aðeins of mikið af því góða. Með vængjunum var svo auðvitað borið fram hefðbundið meðlæti, sellerístangir og gráðostasósa.
Þrátt fyrir að vera ekki mikil beinanögunarmanneskja sjálf finnst mér þessi samsetning, þ.e. buffaló kjúklingur og gráðostur alveg dásamlega góð. Það var svo einu sinni að ég fékk á veitingastað hér heima alveg frábært buffaló kjúklingasalat með gráðostasósu. Salatið hitti beint í mark hjá mínum bragðlaukum og ég gat notið buffaló stemmningarinnar án þess að vera með kjúklingabein í andltinu og klístruð á puttunum. (Það er þó alveg staður og stund fyrir svoleiðis.. stundum ekki misskilja mig). En nú er veitingastaðurinn hættur og buffaló salatið sömuleiðis. Ég hef því endurvakið þetta frábæra salat heima við og útkoman var alveg hreint ljómandi gómsæt. Það er sko ekkert leiðinlegt eða bragðlaust við þetta kjúklingasalat og ég gæti sennilega borðað það oft í viku án þess að fá leið á því.
Buffaló kjúklingasalat með gráðosti (fyrir 2):
- 2 eldaðar kjúklingabringur, t.d grillaðar
- 4 msk Buffalo Hot sauce (Mér þykir þessi best)
- 2 msk smjör
- Gott salat, t.d Lambhagasalat
- 3 vorlaukar
- 3 tómatar
- Gráðostur eftir smekk
Aðferð: Byrjið á að elda kjúklingabringurnar í gegn. Rífið eða saxið salatið og leggið á fat eða stóran disk. Saxið tómatana og vorlaukinn frekar smátt og dreifið yfir salatið. Bræðið smjörið í litlum potti og hellið buffaló sósunni yfir og pískið vel saman við smjörið. Hellið sósunni svo yfir eldaðar kjúklingabringurnar og veltið þeim vel upp úr sósunni. Skerið bringurnar svo í þunnar sneiðar og leggið ofan á salatið. Myljið gráðostinn að lokum yfir.
Gráðostasósa:
- 2 msk gráðostur
- 2 msk majones
- 1 msk hvítvínsedik
- Mjólk eða rjómi til að þynna sósuna, ca. 2-3 msk
- Örlítið sjávarsalt og svartur pipar
Aðferð: Stappið gráðostinn í skál með gaffli og blandið majónesi, ediki, salt og pipar saman við. Þynnið með mjólk þar til sósan er eins og þið viljið hafa hana. Ég miða við að sósan sé ca. á þykkt við súrmjólk. Hellið svolitlu af sósunni yfir salatið og berið restina fram með því. Svo er gott að fá sér smá auka buffaló hot sauce yfir ef maður vill hafa salatið vel sterkt.