Einn af uppáhalds veitingastöðum okkar Heimis í Reykjavík og þó víðar væri leitað er Fiskmarkaðurinn. Það eru komin þó nokkuð mörg ár síðan við fórum þangað fyrst og eftir það var hreinlega ekki aftur snúið. Höfum eiginlega farið vandræðalega oft út að borða þangað síðan og aldrei orðið fyrir vonbrigðum, sama hvað við pöntum. Eftir að Grillmarkaðurinn opnaði höfum við líka farið nokkrum sinnum þangað og það er sama sagan þar. Alltaf góður matur og bara allt gott svei mér þá. Fiskmarkaðurinn er samt algjörlega staðurinn okkar og alltaf pottþéttur ef okkur langar að eiga virkilega góða kvöldstund. Það má eiginlega segja að við höfum lært að meta góða fiskrétti og sushi eftir allar heimsóknir okkar á staðinn og einnig hvað það skiptir gríðarlega miklu máli að fiskur sé nýr. Spriklandi nýr! Það er næstum því hálf fáránlegt að fiskistaður sé minn uppáhalds veitingastaður þar sem ég hef alls ekki verið mikill fiskiaðdáandi í gegnum tíðina. En fiskur á Fiskmarkaðnum er einfaldlega bara settur á annað plan, aldrei ofeldaður eða þurr og bragðið alltaf svo ótrúlega gott að maður skilur ekki hvað í ósköpunum þeir gera í eldhúsinu til að framkalla það.
Einn af réttunum á Fiskmarkaðnum er robata grillaður lax sem er meðal annars borinn fram með epla- og fennel salati. Laxinn er grillaður á sérstöku robata grilli en í því eru japönsk kol sem brenna við 1200 gráður í stað 600 gráða eins og venjuleg kol. Einn af göldrunum (held ég) við laxinn er sumsé að grilla hann snöggt við mjög, mjög háan hita og leyfa honum svo að jafna sig aðeins áður en hann er borðaður. Þannig verður fiskurinn fullkomlega eldaður og aldrei þurr. En jæja, undir áhrifum frá Fiskmarkaðnum, en án robata grills, ákvað ég í auðmýkt minni að elda bleikju hérna heima síðasta föstudagskvöld. Þó þetta hafi nú ekki verið nein Fiskmarkaðs bleikja var maturinn stórgóður. Bragðið af eilítið súrsætu og stökku epla- og fennel salatinu, rjómakenndu blómkálinu og grillaðri bleikjunni smell passaði saman. Með þessu drukkum við ítalskt Prosecco freyðivín, Santero Prosecco Craze. Okkur fannst það ofsalega gott með, en við höfum annars ekki hundsvit á hvaða vín passa með hvaða mat, öðruvísi en bara að smakka og athuga hvort okkur finnist það gott. Ég mæli alveg innilega með þessum rétti!
(Í þetta sinn fylgja óvenju fáar myndir með uppskriftinni þar sem myndavélin var eitthvað að stríða mér.)
Magnið sem ég gef upp er miðað fyrir 2-3 manneskjur.
Rjómabakað blómkál
- 1 lítll blómkálshaus eða 1/2 stór (ég vigtaði ekki blómkálið)
- 1 laukur
- Nokkrir piccolo tómatar eða kirsuberjatómatar
- 1,5 dl rjómi
- Rifinn parmesan ostur
- 1 msk Ólífuolía, salt og pipar
Aðferð: Allt skorið í hæfilega bita og sett í eldfast mót. Velt upp úr ólífuolíu, salti og pipar. Rjómanum hellt yfir og vel af rifnum parmesan osti stráð yfir. Bakað við 200 gráður í 20 mínútur. (Á meðan restin af réttinum er útbúin)
Pikklað epla- og fennelsalat
- 1 epli
- 1 fennelhöfuð
- 1 dl hvítvínsedik
- 2 msk sykur (eða önnur sæta)
- Sjávarsalt og nýmalaður pipar
Aðferð: Eplið og fennelið er skorið í frekar litla teninga og sett í skál. Edikið hitað í potti ásamt sykrinum þar til hann leysist upp (ekki sjóða edikið). Edikblöndunni hellt yfir eplið og fennelið og blandað vel saman. Kryddað með smá salti og pipar. Ef fennelið hefur falleg blöð er upplagt að nota dálítið af þeim með. Gefa gott bragð og eru falleg. Geymið við stofuhita á meðan bleikjan er grilluð.
Bleikjan
- Tvö væn glæný bleikjuflök skorin í tvennt (samtals 550 gr)
- Ólífuolía, sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð: Hreinsið bleikjuna, beinhreinsið hana og skerið hvort flak í tvennt. Þerrið hana vel með eldhúspappír, penslið með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar báðum megin. Hitið grill eða grillpönnu á hæsta mögulega styrk þar til fer að rjúka. Grillið bleikjuna í 1-2 mínútur á fiskihliðinni og snúið henni svo við og grillið í 2 mínútur á roðhliðinni áfram á hæsta styrk. Slökkvið undir og leyfið bleikjunni að jafna sig í 5-10 mínútur. Berið fram með rjómabakaða blómkálinu og setjið vel af epla- og fennel salatinu yfir bleikjuna.