• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

LKL ís

Sykurlaus rjóma og jarðarberja skyrís

júlí 5, 2013 by helenagunnarsd 4 Comments

min_IMG_3167Það er varla til meira viðeigandi ávöxtur til að nota um hásumarið en jarðarber. Ég fann þessi dásamlega góðu og eldrauðu jarðarber í matvörubúð í dag og það sem meira var þá voru þau á góðum afslætti. Ég gat því ekki látið happ úr hendi sleppa, skellti mér á þrjú box og einhverra hluta vegna var jarðarberjaís það eina sem kom upp í huga minn. min_IMG_3144Margir búa til ís heima hjá sér um jólin en einhverra hluta vegna er fólk (ég) ekki að búa til ís svona á öðrum árstímum. En það er bara endemis vitleysa, enda ís einstaklega sumarlegur og frekar einfalt er að búa hann til. Í þessari útgáfu notaði ég ekki venjulegan sykur, heldur skipti honum út fyrir steviu og xylitol. Það er hins vegar einfaldasta mál að skipta því út vilji fólk nota venjulegan sykur. Ísinn er algjörlega frábær á bragðið, ferskur en samt rjómakenndur og svo einfaldur að þið trúið því ekki. Prófið þennan!

min_IMG_3159

Jarðarberjaís:

  • 3 heil egg
  • 3 eggjarauður
  • 15 dropar stevia og 4 msk xylitol (eða 5 msk venjulegur sykur)
  • 500 gr jarðarber
  • 2 tsk vanilluextract
  • Stór dós vanillu skyr.is (500gr)
  • 5 dl rjómimin_IMG_3142

Aðferð: Byrjið á að þeyta rjómann og blandið skyrinu varlega saman við hann. Geymið í ísskáp á meðan þið útbúið restina. Vigtið 500 grömm af hreinsuðum jarðarberjum og maukið þau í gróft mauk í matvinnsluvél eða blandara. Setjið eggin, eggjarauðurnar, steviu og xylitol (eða sykurinn) í hrærivél og þeytið af fullum krafti í 5 mínútur eða þar til blandan er orðin mjög ljós og létt og hefur þykknað vel. Blandið rjómaskyrblöndunni varlega saman við eggjablönduna ásamt jarðarberjamaukinu og vanilluextracti. Hrærið varlega saman með sleikju þar til þetta er komið vel saman. Hellið í box og frystið í a.m.k 6 – 8 tíma. Njótið á heitum sumardegi eða bara í rigninunni. Það má líka 🙂

Athugið að þegar ísinn hefur frosið í gegn er hann frekar harður. Það er því þjóðráð að taka hann úr frystinum og leyfa honum að standa á borði í 15-20 mínútur og skafa hann svo í fallegar kúlur. min_IMG_3169min_IMG_3181

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Heimatilbúinn ís, Ís uppskrift, Jarðarberjaís, Jarðarberjaís uppskrift, LKL ís, Skyrís, Sykurlaus ís

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme