Uppáhalds sjónvarpsefnið á heimilinu hjá okkur mæðginum þessa dagana er Eldað með Ebbu á RÚV. Eruð þið ekki örugglega búin að vera að horfa? Það skiptir ekki máli hvort hún er að búa til skærgræna safa eða dýrindis kvöldmat, allt verður þetta jafn girnilegt. Svo lítur allt sem hún gerir út fyrir að vera svo auðvelt, sem það er. Ég hef prófað óteljandi margar uppskriftir frá henni, þær eru allar góðar og í alvöru svo einfaldar og þægilegar. Hvet ykkur til að prófa. Sonur minn hefur til dæmis ALDREI fengist til að drekka græna drykki eða djúsa. Einum Ebbu þætti seinna og barnið gúllar í sig fullu glasi af ósætum skrímslagrænum safa án þess að hika og hefur gaman að því, mér til mikillar gleði! Þessi drykkur sem ég gef uppskrift að núna hefur fylgt mér í nokkur ár og sá litli hefur aldrei fúlsað við honum. Okkur þykir hann alltaf jafn góður og það tekur enga stund að henda innihaldinu í blandarann og þá er morgunmaturinn tilbúinn mínútu seinna. Mér finnst gott að hafa allt hráefnið nálægt blandaranum á morgnana þegar ég geri drykkinn, hljómar kannski asnalega en trúið mér, það munar heilmiklu að þurfa ekki að grafa ofan í skúffum eða skápum og leita að því sem á að fara í drykkinn. Sérstaklega á morgnana þegar allir eru að flýta sér og ég er alltaf að flýta mér. Það getur því borgað sig að hafa allt innan seilingar eða flýta fyrir sér á kvöldin og gera allt tilbúið fyrir svefninn. Stundum skipti ég bláberjunum út fyrir frosin jarðarber og hálfan banana, það þykir stráknum mínum ofsalega gott, enda bragðast það eins og besti jarðarberjasjeik.
- 2 dl ósæt möndlumjólk
- 1 dl vatn (minna ef þið viljið þykkan drykk)
- 2-3 dl frosin bláber
- 1 tsk kókosolía
- 1 msk hampfræ
- 1 msk chiafræ
- 4-5 dropar stevia, ef þið vijið sætara bragð. Má líka sleppa.
Aðferð: Allt sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. Stundum set ég eina matskeið af hreinu mysu- eða hemp próteini út í drykkinn ef ég á það til. Þá verður drykkurinn matarmeiri og maður er lengur saddur.