Verið hjartanlega velkomin á Eldhúsperlur. Ég heiti Helena og fékk þá hugdettu síðla hausts 2012 að byrja með þetta litla matarblogg. Það hefur vaxið og dafnað með tímanum og inniheldur nú á annað hundrað uppskriftir sem eru allar í uppáhaldi hjá mér og mínum. Ég hafði lengi ætlað mér að búa til síðu þar sem ég gæti sett allar uppáhalds uppskriftirnar mínar á einn stað sem og deilt tilraunum mínum í eldhúsinu með fleira fólki. Ég leitast ávallt við að vera með einfalda matargerð þar sem hráefnin fá að njóta sín og er lítið fyrir að flækja hlutina að óþörfu í eldhúsinu. Uppskriftir og myndir á síðunni eru allar frá mér nema annað sé tekið fram. Ef þið viljið birta efni frá Eldhúsperlum er það sjálfsagt ef heimilda er getið.
Vona að þið njótið vel og takk fyrir að líta inn. Endilega skiljið eftir ykkur spor þegar þið lítið inn og mikið finnst mér alltaf gaman að heyra frá þeim sem prófa uppskriftirnar!
Ef þið viljið senda mér línu er netfangið mitt: helenagunnarsd@hotmail.com
Kær kveðja, Helena