Við áttum sérdeilis góðan dag þennan mánudaginn þar sem lítil blómarós hún systurdóttir mín og guðdóttir varð eins árs í dag. Ég tók mig til og bakaði nokkrar bollakökur fyrir afmælið. Móðirin bað sérstaklega um rósaskreyttar bollakökur eins og þessar hérna. Í staðin fyrir að gera súkkulaði kökur með vanillukremi gerði ég ekta vanillu bollakökur og setti ljósbleikt jarðarberja smjörkrem ofan á. Set inn uppskriftina af þeim á næstu dögum. Ég gat hins vegar ekki hætt þarna og fannst heldur freistandi að gera einhverjar fullorðins kökur líka. Fyrir valinu urðu súkkulaðibollakökur með súkkulaði ganache á tvo vegu. En það var nú aðallega af því ég gat ekki ákveðið hvernig ég vildi hafa ganache-inn.. Ég get verið svolítið óákveðin þegar kemur að svona hlutum. Sannkölluð súkkulaðisprengja en svo góð að það var eiginlega agalegt.
Ég gef hérna uppskrift að súkkulaði ganache sem ég notaði ofan á kökurnar. Þetta er afar einföld uppskrift með fáum hráefnum svo það er mikilvægt að nota virkilega gott súkkulaði í þetta 🙂 Útkoman er svo dásamlegt súkkulaðikrem að maður gæti næstum grátið. Það skemmtilega við svona ganache er líka að maður getur notaði hann á ýmsa vegu. T.d má hella honum yfir kökur meðan hann er ennþá mjúkur, láta hann stífna aðeins og smyrja honum eða sprauta á kökur og svo, það sem mér þótti allra sniðugast, þeyta hann. Þá verður hann aðeins ljósari og loftkenndur og frábær til að sprauta á bollakökur.
(Hér má finna uppskriftina að súkkulaði bollakökunum sem ég notaði)
Súkkulaði ganache krem (dugar á um 25-30 bollakökur):
- 500 gr. súkkulaði (ég notaði 300 gr suðusúkkulaði og 200 gr 70% súkkulaði)
- 3,5 dl rjómi
- 1 tsk vanilluextract
Aðferð: Saxið súkkulaðið smátt og setjið í skál. Hellið rjómanum í pott og hitið að suðumarki. Ekki láta hann sjóða. Slökkvið undið þegar froða byrjar að myndast á rjómanum og þið sjáið að suðan er alveg að koma upp. Hellið rjómanum yfir súkkulaðið gegnum sigti. Látið standa í 2 mínútur óhreyft. Hrærið saman með sleikju. Byrjið að hræra í miðri skálinni með litlum hreyfingum. Þegar þið sjáið að súkkulaðið og rjóminn er byrjað að koma saman getið þið stækkað hreyfinguna og svo hrært alveg óhrædd og vasklega þar til kominn er fallegur glans á þykkt súkkulaðikremið. Bætið þá einni tsk af vanilluextract saman við.
Þá eruð þið komin með súkkulaði ganache. Á þessum tímapunkti er hægt að gera ýmislegt við kremið. Ég sett skálina inn í ísskáp í um 1 klst, eftir þann tíma hrærði ég vel upp í súkkulaðinu með sleikju og gat með góðu móti smurt því á bollakökurnar með litlum spaða. Ef súkkulaðið er enn of lint til að hægt sé að smyrja því þarf að kæla það í 15 mínútur í viðbót og athuga svo aftur. Það má þó ekki vera of lengi inni í ísskáp því þá verður það of stíft.
Eftir að hafa smurt ganache á allar kökurnar átti ég smá afgang. Ég skellti honum í hrærivélaskálina og þeytti í ca 2 mínútur þar til ég var komin með ljóst og loftkennd súkkulaði krem. (Á þessum tímapunkti væri hægt að setja andlitið ofan í skálina og anda að sér mestu súkkulaði dásamlegheitum sem þið hafið kynnst..ekki gera það samt). Ég setti þetta dásamlega létta krem því næst í sprautupoka og sprautaði lítil súkkulaði blóm ofan á bollakökurnar. Súkkulaði skrautkurlið sem ég notaði ofaná fékk ég í Kitchen Library Smáralindinni.
Marta Rós
Ég slefa hérna! Frábær hugmynd hjá þér að bæta léttþeytta kreminu ofan á, kemur ótrúlega vel út og smakkast ábyggilega dásamlega!
helenagunnarsd
Takk Marta 🙂 Já það er sko vel hægt að slefa yfir súkkulaði .. En ég mæli eindregið með svona þeyttum súkkulaði ganache, alveg hættulega gott !
Kristín Gróa
Útt þetta lítur hættulega vel út!