Ég hef alla vikuna dundað mér við að ákveða hvað ég eigi að bjóða upp á í matarklúbbi sem verður hjá okkur í kvöld. Ég er sennilega búin að fara í um það bil 17 hringi með matseðilinn en eitt sem ég fór ekki í neina hringi með er eftirrétturinn. Toblerone Tiramisu var það. Ég man ekki hvar ég sá það en einhverntímann í fyrndinni sá ég uppskrift að Toblerone Tiramisu í einhverju uppskriftablaði. Ég fór því á stúfana og leitaði að góðri tiramisu uppskrift og endaði á smá blöndu af tveimur uppskriftum sem eiga að vera þær bestu í heimi.
Þó þetta sé Toblerone tiramisu er það nú samt frekar klassískt, Tobleronið er bara svona smá twist. Öllum finnst það gott svo hversu slæmt getur orðið að saxa það smátt og dreifa því yfir drottningu eftirréttanna? Það er varla hægt að gera þægilegri eftirrétt en þennan þegar von er á mörgum í mat, því það er upplagt að búa hann til daginn áður og leyfa honum að jafna sig í ísskáp yfir nótt. Var ég ekki örugglega búin að minnast á hvað tiramisu er gott?
Toblerone Tiramisu (fyrir 10-12, uppskriftina má auðveldlega minnka um helming):
- 6 eggjarauður
- 2,5 dl sykur
- 1 vanillustöng
- 2 dósir mascarpone ostur (stofuheitur)
- 5 dl rjómi
- 1 bolli (2,5 dl) sterkt kaffi
- 4 msk amaretto líkjör eða annar sætur líkjör
- 2 pakkar fingurkökur (lady fingers)
- 2 toblerone
- Hreint kakó
Aðferð: Hellið upp á sterkt kaffi, setjið það í skál ásamt líkjör og leyfið að kólna. Þeytið rjómann og setjið til hliðar. Setjið 6 eggjarauður í skál ásamt sykrinum og kornunum úr vanillustönginni. Setjið skálina yfir sjóðandi vatn og þeytið með písk í um 10 mínútur þar til eggjablandan er aðeins ljósari. Takið hana svo af hitanum og þeytið áfram með hrærivél eða handþeytara þar til eggin þykkna og verða ljós. Hrærið þá mjúkum mascarpone ostinum samanvið með þeytaranum. Bætið þeyttum rjómanum saman við með sleikju.
Dýfið fingurkökunum örstutt ofan í kaffiblönduna og raðið í form þar til kökurnar þekja botninn. Hellið helmingnum af eggjarjómanum yfir og raðið svo fleiri fingurkökum og hellið restinni af rjómablöndunni yfir allt saman. Saxið tobleronið smátt, dreifið yfir og stráið svo kakóinu yfir gegnum sigti. Látið bíða í ísskáp í minnst 8 klst. Þetta geymist svo vel í 3-4 daga í ísskáp.
Hrafnhildur
úúú hlakka til að smakka þetta 🙂
helenagunnarsd
Stenst vonandi væntingar.. 😉