Enn ein helgin liðin og enn einu sinni kominn mánudagur. Helgin var alveg einstaklega skemmtileg hjá okkur þar sem við vorum með 10 manna matarklúbb á laugardagskvöldið með frábæru fólki og góðum mat og drykk. Gerist ekki mikið betra en það! Ég er reyndar alltaf líka hrifin af mánudögum svona almennt og skil ekki hvaða mánudagsmæða þetta er alltaf hreint í fólki. Það fólk hlýtur þá bara að vera í svona leiðinlegri vinnu eða almennt að sýsla við eitthvað sem veitir því ekki mikla ánægju í lífinu.. þetta er pæling.
En eins og ég hef talað um hér áður þá er það yfirlíst stefna á mínu heimili að hafa alltaf eitthvað gott og skemmtilegt í matinn á mánudögum. Þar sem veðrið í dag var svo yndislegt fannst mér upplagt að grilla eitthvað gómsætt. Þá mundi ég eftir tveimur pokum af tígrisrækjum sem á átti inni í frysti svo ég ákvað að búa til létt og sumarlegt salat með góðri bragðmikilli dressingu.
- 2 pokar tígrisrækjur (um 600 grömm)
- 3 msk ólífuolía
- 1 hvítlauksrif, smátt saxað
- 1/2 tsk rauðar chilli flögur
- 2 msk söxuð fersk steinselja
- 1 sítróna, börkurinn og safinn úr hálfri.
- Salt og pipar
- Það sem ég notaði í salatið:
- Gott grænt salat, t.d blaðsalat, spínat og lollo rosso
- Avocado
- Tómatar
- Kókosflögur
- Sólþurrkaðir tómatar
- Ólífuolía, t.d sítrónuolía, salt og pipar og sítrónusafi
- Sósan:
- 1 msk majónes
- 4 msk sýrður rjómi
- 1 msk sambal oelek chillimauk
Aðferð: Tígrísrækjur látnar þiðna og settar í skál. Ólífuolíu, hvítlauk, chilli flögum, steinselju, rifnum sítrónuberkinu, sítrónusafa, salti og pipar hrært saman og svo hellt yfir rækjurnar. Um að gera að smakka marineringuna til áður en henni er hellt yfir rækjurnar. Þær eru svo þræddar upp á spjót. Það er mjög gott að nota tvö spjót hlið við hlið þegar rækjurnar eru þræddar upp. Þá verður bæði auðveldara að snúa þeim og rækjurnar haggast ekki á spjótunum, þ.e hreyfast ekki þegar þeim er snúið við. Útbúið svo salatið í stóra skál og hrærið innihaldið í sósuna saman. Grillið rækjurnar á útigrilli við háan hita í 3-5 mínútur á hvorri hlið og berið þær fram volgar ofan á salatinu ásamt chilli sósunni. Ískalt hvítvínsglas væri ekki úr vegi með þessu. Kalda kranavatnið dugði þó vel í þetta skiptið.
Nanna
Oh ég væri til í svona ákúrat núna!