Það er nú meira vesenið stundum hvað matur getur verið dásamlega góður. Það mætti halda miðað við færslurnar hérna inni undanfarið að það eina sem við borðum séu stórsteikur, rjómasósur, súkkulaði og eftirréttir. Það er nú ekki svo en það er bara svo gaman að deila þannig góðgæti með ykkur lesendur góðir. Ég get líka alveg svarið það að mest lesnu uppskriftirnar hérna inni eru svona oftast þær sem maður ætti sannarlega ekki að borða daglega. En mikið finnst mér alltaf gaman að sjá hversu margir eru að lesa síðuna. Dag frá degi eykst heimsóknarfjöldinn og ég hefði aldrei trúað því þegar ég byrjaði á þessu fyrr í vetur, hversu gaman þetta væri. Þó ég hafi vissulega leytt hugann að því lengi að setja uppskriftirnar mína upp á einhverja svona síðu grunaði mig aldrei að einhverjir myndu lesa þetta nema ég og svona tveir aðrir (mamma og hugsanlega maðurinn minn). En svona getur þetta nú verið skemmtilegt og ég verð alltaf jafn glöð og hissa að sjá hversu margir skoða og það sem gleður mig mest er að fá send skilaboð frá ókunnugu fólki sem hefur prófað uppskriftirnar og vill þakka fyrir sig. Það er svo gaman að ég roðna bara við tilhugsunina.
Ég ætla að deila með ykkur uppskrift af súkkulaði eldfjöllum sem eru nú alveg óþarflega gómsæt. Ég var með þetta í eftirrétt í gærkvöldi, systir mín og mágur komu mat og við elduðum ekta beef Wellington sem er innbökuð nautalund. Ég set þá uppskrift sannarlega hingað inn næstu daga. En þessi súkkulaðibomba er rosalega þægilegur eftirréttur sem má undirbúa jafnvel með dags fyrirvara og skella svo í ofn rétt áður en bera á hann fram. Vá-faktorinn er mikill þegar skeiðinni er stungið í kökuna og út flæðir súkkulaðikvikan. Svo í guðanna bænum passiði að ofbaka ekki kökurnar.
Uppskrift (fyrir 6):
- 200 gr dökkt súkkulaði (70%)
- 200 gr smjör
- 3 egg og 1 eggjarauða
- 200 gr flórsykur
- 1 tsk vanilluextract
- 5 msk hveiti (75 grömm)
- 1/8 tsk vínsteinslyftiduft (cream of tartar)
- 1/2 tsk fínmalað sjávarsalt
Aðferð: Ofn hitaður í 200 gráður, ekki með blæstri. Bræðið smjör og súkkulaði í potti við vægan hita. Takið af hitanum og leyfið að kólna. Þeytið saman egg, flórsykur og vanilluextract þar til létt og ljóst. Sigtið saman hveitið, vínsteinslyftiduftið og saltið. Hellið súkkulaðiblöndunni saman við eggin og hrærið vel saman. Hellið hveitblöndunni svo út í og blandið vel saman. Skiptið deiginu í 6 lítil suffléform eða hellið um það bil 1 dl af deiginu í 12 álmuffinsform sem hafa verið smurð og bökunarpappír settur upp með hliðunum. Þá eru tvær kökur á mann.
Ef bakað í 12 muffinsformum tekur um 10 mínútur að baka kökurnar. Ef kökurnar eru bakaðar í 6 suffléformum er bökunartíminn um 12 mínútur. Þær eiga að vera blautar í miðjunni. Tíminn getur þó verið mismunandi milli ofna svo ég mæli eiginlega með að prófa eina köku áður en þið bakið allt saman og finnið út hver er passlegur tími í ykkar ofni. Deigið má líka útbúa daginn áður eða nokkrum klukkutímum áður, kæla í formunum en passa þá að bæta um 2 mínútum við bökunartímann.
[…] Litlar súkkulaðikökur með blautum kjarna. Klassískur eftirréttur og það góða við hann er að hann má undirbúa með góðum fyrirvara og skella svo í ofn rétt áður en hann er borinn fram. Himneskar sætar syndir..Það er varla hægt að hugsa sér einfaldari eftirrétt en þennan og ég á ennþá eftir að hitta manneskju sem þykir þetta ekki gott. Marengsbomba með rjómasúkkulaðirúsínum, pipp súkkulaðisósu og ávöxtum. Hér er um að gera að nota það sem manni þykir sjálfum best og gefa hugmyndafluginu lausan tauminn.Ég luma ennþá á bláberjum í frystinum síðan í haust og get ekki beðið eftir að gera þessa ómótstæðilega góðu bláberjaböku með marengs. Fá hráefni og einstaklega ljúffeng útkoma. Einn af mínum uppáhalds eftirréttum.Dásamlega tiramisu. Ég veit ég sagði að bláberjabakan væri einn af mínum uppáhalds eftirréttur en í alvöru þá held ég að tiramisu nái hugsanlega að toppa hana. Þetta Toblerone Tiramisu er yndislega gott. Þeir sem halda að þeir séu ekki mikið fyrir tiramisu skipta um skoðun þegar þeir smakka þetta. Það er bara þannig. Döðluterta með jarðarberjarjóma og súkkulaðikremi. Það þarf svosum ekkert að vera að orðlengja neitt um þessa klassísku tertu sem hefur verið á borðum hjá okkur fjölskyldunni svo árum skiptir. Alltaf svo góð, bæði sem eftirréttur eða á kaffiborðið. Þessi einfalda súkkulaðimús er alltaf góð. Ég mæli með að bera hana fram með þeyttum rjóma og ferskum berjum, hindber þykja mér best með henni. Eftirréttur sem flestum þykir góður!Fersk og létt en bráðnar í munni. Sítrónu blondína myndi sóma sér vel sem eftirréttur á eftir steikinni eða reyktu kjöti. Borin fram með þeyttum rjóma eða vanilluís og skreytt með jólalegum rifsberjum. Langar ykkur ekki í sneið?Voruð þið ekki örugglega búin að sjá jólaísinn í ár? Rjómaís með Baileys, Irish cream súkkulaði og piparkökum. Ég gat ekki gert listann án þess að hafa þennan með. Síðast en alls ekki síst. Brownie með rjómaosti og pipp súkkulaði. Ó hún er svo góð að maður gæti næstum grátið. Fólk sem hefur prófað er sannfært og nú er komið að þér. […]