Svei mér þá ef sumarið er ekki bara komið. Ég ætla að leyfa mér að segja það. Sonur minn spyr mig nánast daglega hvenær sumarið komi og skilur illa útskýringar mínar um að stundum rigni á sumrin. ”Getum við þá ekki farið í útilegu?”.. Fyrir honum er sumarið sól, ís á palli, stuttbuxur, gras, grillaðar pylsur og frisbídiskur. Ég sit allavega úti á palli í þessum skrifuðu orðum í smá hádegishléi frá lestri fræðibóka og almennum lokaritgerðarhugleiðingum, sólin skín í heiði og það er pottur á pallinum. Mig langar að deila með ykkur mikilli uppáhaldsuppskrift sem er í senn einföld og sérstaklega góð. Þessar rúllur hafa fylgt mér lengi og þróast aðeins með árunum þó að vissulega séu nú engin geimvísindi á bakvið þær. Mér þykir þetta upplagður föstudags- eða laugardagsmatur þegar alla langar í eitthvað gott að borða og vilja gera vel við sig án mikillar fyrirhafnar.
Fylltar ofnbakaðar tortillarúllur (fyrir 4):
- 500-600 gr hreint ungnautahakk (einn góður bakki)
- 1 krukka salsa sósa (ég nota milda)
- 1-2 dl vatn
- Krydd t.d reykt paprika, cumin, hvítlauksduft og Krydd lífsins
- Ferskt kóríander (má sleppa)
- 1 dós 18% sýrður rjómi
- 1 lítil dós hreinn rjómaostur
- 6 heilhveiti tortilla kökur (minni gerðin)
- 1 poki rifinn ostur (t.d pizzaostur)
- 1 box piccolo tómatar skornir í fernt
- 5 vorlaukar saxaðir smátt
- 1 rauð paprika smátt söxuð
- 2 avocado skorin í sneiðar
Aðferð: Hitið ofninn í 200 gráður. Byrjið á að saxa niður grænmetið. Steikið kjötið svo vel og kryddið það eftir smekk.Þegar kjötið er brúnað hellið salsasósunni yfir ásamt vatni og leyfið þessu að sjóða í ca. 5 mínútur. Takið þá af hitanum og bætið smá söxuðu kóríander saman við. Leggið tortillaköku fyrir framan ykkur. Smyrjið á hana 1 msk af rjómaosti. Setjið því næst 1/6 af hakkinu ofaná ásamt ca. matskeið af rifnum osti. Rúllið kökunni upp og leggið í eldfast mót.Endurtakið þar til allar kökurnar eru fylltar. Setjið sýrðan rjóma hér og þar yfir kökurnar. Stráið því næst söxuðu grænmetinu yfir og restinni af rifna ostinum. Bakið við 200 gráður í 15 mínútur. Berið fram með avocadosneiðum og brosi á vör 🙂
Sara Elísabet
prófaði þetta! ótrúlega gott!!!! 😀 Takk fyrir mig:)
helenagunnarsd
Æði! Verði þér að góðu! 🙂
Sigga
Ætla að prófa þessa í kvöld, hlakka ekkert smá til 🙂
helenagunnarsd
Það líst mér á! 🙂
Sigga
Varð ekki fyrir vonbrigðum, allir elskuðu þetta! Verður klárlega aftur á matseðlinum. Snilldar réttur.
Nafnlaust
Líst rosalega vel á þessa uppskrift..er allavega búin að eyða töluverðum tíma í að finna hana hehe.. gat enganvegin munað hvar ég hafði séð hana ..Takk fyrir mig 🙂
helenagunnarsd
Takk fyrir kveðjuna, gott að þú fannst uppskriftina 😉
Kær kveðja, Helena
Inga Björg
JÆJA …HELDUR BETUR FÍNN RÉTTUR..og allir ánægðir. Verður oftar hjá okkur
Ellen
Útbjó þennan rétt um daginn og hann var svaka góður – takk kærlega fyrir mig! Og ég mun pottþétt gera hann aftur 🙂