• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Sítrónu brownie

september 20, 2013 by helenagunnarsd 3 Comments

min_IMG_4183Það er auðvitað mesti misskilningur að skýra þessa köku ”brownie”. Fyrir utan það að málfarsráðunautar og íslenskufræðingar fái andarteppu yfir enskuslettri nafngiftinni þá er kakan alls ekkert brún og það er alls ekkert súkkulaði í henni. Þvert á móti er hún ljósgul og dásamleg eins og sól í kökuformi og bragðast eins og sæt sítróna. Titlinum var einungis ætlað að reyna með einhverjum hætti að lýsa hvers konar tegund af köku þetta er. Hún er semsagt blaut eins og brownies eiga það til að vera og samsetning hráefna er ekki ósvipuð, nema að jú, það er ekki notað kakó eða súkkulaði heldur er sítróna notuð til að bragbæta deigið. Gott að þetta er komið á hreint. Þetta er dýrindis kaka sem tekur enga stund að henda í og að sjálfsögðu get ég ekki annað en mælt með að þið prófið!min_IMG_4188

Sítrónu ”brownie” kaka:

  • 150 gr. ósaltað smjör
  • 2 stór egg
  • 2,5 dl hrásykur
  • 1 tsk vanilluextract
  • 1/2 tsk salt
  • 1 sítróna
  • 1,5 dl hveiti eða fínmalað spelt

min_IMG_4176Aðferð: Hitið ofn í 150 gráður með blæstri. Byrjið á að bræða smjörið í potti og leyfið því að kólna aðeins. Rífið börkinn af sítrónunni með fínu rifjárni, athugið að taka einungis gula hlutann af hýðinu. Kreistið safann úr sítrónunni og setjið til hliðar. Þeytið saman egg, sykur og vanillu þar til létt og ljós. Lækkið hraðann og bætið salti, sítrónuskræli og safa út í ásamt smjörinu. Sigtið hveitið út í og blandið varlega saman við með sleikju. Hellið í smurt form, ca. 20 cm í þvermál og bakið í 35 mínútur. Kælið í forminu, setjið á kökudisk, stráið flórsykri yfir og skreytið t.d með rifsberjum.min_IMG_4186min_IMG_4185

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Einfaldur eftirréttur, Einföld kaka, góður eftirréttur, Kladdkaka, Sítrónubrownie, Sítrónukaka

Previous Post: « Grænmetisbaka með fetaosti og furuhnetum
Next Post: Svívirðilegar súkkulaðibitakökur »

Reader Interactions

Comments

  1. Heiðrún Finnbogadóttir

    september 29, 2013 at 13:39

    Þá er þetta örugglega Blondie:) Hrikalega girnileg.-Kveðja Heiða

    Svara
    • helenagunnarsd

      september 29, 2013 at 14:14

      Já það segirðu satt! Svona getur maður stundum verið takmarkaður, mér datt bara alls ekki í hug að kalla þetta blondie, en þykir það núna alveg afbragðs góð hugmynd 😉

      Svara

Trackbacks

  1. Sætur endir og jólakveðja.. | Eldhúsperlur skrifar:
    desember 23, 2013 kl. 12:23

    […] mér best með henni. Eftirréttur sem flestum þykir góður!Fersk og létt en bráðnar í munni. Sítrónu blondína myndi sóma sér vel sem eftirréttur á eftir steikinni eða reyktu kjöti. Borin fram með […]

    Svara

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme