• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Nutella brúnkur

september 4, 2014 by helenagunnarsd 1 Comment

IMG_5249Hvernig ég gat gleymt að setja þessa uppskrift inn skil ég ekki. Þetta, mín kæru, var sennilega eitt af stærri mataraugnablikum eldhúss Eldhúsperlna í sumar. Fólk sem smakkaði féll í stafi og ég bíð eftir tækifæri til að baka þessar dásemdardúllur aftur. Ég gaf uppskriftina í Fréttablaðið og hún birtist minnir mig í byrjun ágúst sem ein af nokkrum hugmyndum fyrir mat í lautarferðir. IMG_5222Þó að lautarferðartímanum sé nú sennilega lokið þetta árið get ég þó sennilega talið upp þúsund önnur tilefni þar sem brúnkurnar myndu stela senunni. Það sem meira er, þá er næstum jafn vandræðalega auðvelt að búa þær til eins og það er að borða þær. Ég biðst afsökunar á myndgæðunum. Myndirnar voru teknar á símann minn í flýti áður en ljósmyndari Fréttablaðsins mætti í heimsókn og myndaði herlegheitin og eftir það man enginn hvað gerðist.. nema að brúnkurnar kláruðust mjög fljótt. Þær eru blautar, seigar og stökkar, alveg eins og sannar brúnkur eiga að vera. Ekki einu sinni láta ykkur detta í hug að reyna að gera þær eitthvað hollari. Þetta er spari og ber að njóta.

IMG_5202Nutella brúnkur

  • 100 gr smjör, brætt og aðeins kælt
  • 1 dl púðursykur
  • 1 krukka nutella (400 gr)
  • 1 msk hreint kakó
  • 2 tsk vanilluextract
  • 2 egg
  • 1 ½ dl hveiti
  • ½ tsk gott sjávarsalt
  • 3 msk hakkaðar heslihnetur

Aðferð: Hrærið saman bræddu smjöri, púðursykri, nutella, kakó, vanillu og eggjum þar til alveg slétt. Hrærið hveitinu og saltinu saman við þar til rétt komið saman við deigið. Hellið í form (ég nota 20×26 cm form) og stráið hökkuðum heslihnetum jafnt yfir. Bakið við 170 gráður með blæstri í um 20 mínútur. Kakan á að vera dálítið blaut í miðjunni. Látið kólna í a.m.k. klst og skerið þá í bita. Ég þræddi brúnkurnar upp á spjóti með jarðarberjum, sem er til dæmis skemmtilegt fyrir lautaferðir eða aðrar uppákomur. IMG_5244

 

Filed Under: Eldhúsperlur

Previous Post: « Toscana súpa
Next Post: Hollari hafraklattar með banana og hnetusmjöri »

Reader Interactions

Comments

  1. Guðrún M

    september 10, 2014 at 13:04

    Þessar voru gerðar um helgina, rosa góðar 🙂

    Svara

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme