Litla fjögurra ára molanum á heimilinu þykir spaghetti alveg ofboðslega gott. Það gæti sennilega verið til skiptis, spaghetti, pylsubrauð og pizza með ananas alla daga og hann væri nokkuð sáttur. Hann er reyndar líka frekar mikill gúrmei maður og kann vel að meta hluti eins og bragðsterka osta (parmesan sérstaklega), rækjur, humar, ólívur og þar fram eftir götunum. En hann pantaði sumsé að hafa spaghetti í matinn í kvöld og varð að ósk sinni. Ég gat reyndar ekki hugsað mér í þetta skiptið að gera hefðbundna bolognese sósu þó hún sé góð og gild og ákvað því að gera létt og bragðmikið spaghetti með risarækjum. Rétturinn var mjög bragðgóður og var sá litli mjög hrifinn og borðaði vel ! Þetta er kannski dálítið sumarlegur réttur, en hvað er betra í mínus fjórum en þegar eldhúsið ilmar eins og veitingastaður um hásumar í ítölskum strandbæ?
Spaghetti með risarækjum: (fyrir 3-4)
- 300-400 gr frosnar hráar risarækjur, hreinsaðar og skornar í tvennt langsum.
- 2 skallottulaukar, smátt saxaðir
- 1-2 hvítlauksrif, smátt söxuð (má sleppa og nota bara skallottulaukinn)
- 1 askja piccolo tómatar eða kirsuberjatómatar
- 1 væn lúka fersk steinselja, smátt söxuð
- Safi úr einni sítrónu
- 400 gr Spaghetti
- Ólífuolía, salt og pipar
- 2-3 msk parmesan
- Klettasalat og smátt saxaður chilli (má sleppa)
Rækjurnar afþýddar, hreinsaðar og skornar í tvennt eftir endilöngu. Þerraðar á eldhúspappír og kryddaðar með salti og pipar. Spaghetti soðið eftir leiðbeiningum á pakkanum. Á meðan það sýður eru laukurinn og hvítlaukinn steiktur á pönnu í ca. 3 msk af ólífuolíu við meðalhita í um 3-4 mínútur. Tómötunum bætt út á og hitinn hækkaður og rækjurnar settar á pönnuna. Steikt í 2-3 mínútur eða þar til rækjurnar eru orðnar bleikar. Tómatarnir kramdir aðeins með sleifinni eða spaðanum. Þá er sítrónusafanum bætt út á auk steinseljunnar. Saltað og piprað.
Sigtið vatnið frá spaghettíinu þegar það er al dente, en takið frá 1 bolla af soðvatninu. Spaghettíið sett á pönnuna og blandað saman við rækjurnar. Ég sett alveg 1 bolla af soðvatninu með og skreytti svo með steinselju og reif smá parmesan yfir. Munið svo að smakka til með salti og pipar. Ég bar spaghettíið fram með smá klettasalati og dreifði örlitlu af söxuðum chilli yfir fyrir fullorðna fólkið.
Það væri sennilega ekki úr vegi að drekka glas af ísköldu dálítíð þurru hvítvíni með þessum rétti..