Er búin að safna saman nokkrum uppskriftum sem ég er mjög spennt að deila með ykkur en hef ekki haft tíma til þess fyrr en núna. Ein af þeim er þessi frábæra bláberjabaka. Leiðbeiningarstöð heimilanna hefur nú hingað til ekki verið sá staður þar sem ég hef leitað að uppskriftum. Ekki að það sé eitthvað að því, langt í frá. Ef ég á að segja eins og er þá bara vissi ég ekki einu sinni að þessi starfsemi væri ennþá til. En starfsemin er svo sannarlega í fullum gangi og það sem meira er, þá eru þau með þessa fínu heimasíðu þar sem nálgast má upplýsingar um allt milli himins og jarðar sem tengist heimilishaldi, allt frá gluggaþvotti og upp í jólasteikina. Virkilega sniðug heimasíða sem er gaman að skoða ef maður hefur áhuga á að fræðast um þesskonar hluti. Þessi dásamlega góða bláberjabaka er einmitt ættuð af þessari fínu heimasíðu.
Ég fékk þessa böku fyrst í matarboði og eftir smá rannsóknarvinnu á netinu fann ég uppskriftina og breytti henni svo örlítið þar sem ég get aldrei látið neitt í friði. Þetta er alveg yndislega góð og sumarleg baka sem afar fljótlegt er að útbúa. Upplagt að hafa hana í eftirrétt og leyfa henni að bakast á meðan aðalrétturinn er borðaður. Ég var svo heppin að eiga vestfirsk aðalbláber síðan í haust í frystinum sem ég þurfti að fara að nota, en það má auðvitað nota hvaða bláber sem er eða jafnvel einhver önnur ber.
Bláberjabaka (Breytt uppskrift frá Leiðbeiningarstöð heimilanna):
- 200 gr fínmalað spelt
- 100 gr kalt smjör
- 50 gr flórsykur
- 1 ½ tsk lyftiduft
- 3 eggjarauður
- 1 tsk vanilluextract
- ca 500 gr frosin bláber
- Marengs
- 3 eggjahvítur
- 120 gr ljós púðursykur
Aðferð:
Hitið ofn í 150 gráður með blæstri. Setjið allt innihaldið í bökubotninn (allt nema bláberin) í hrærivélaskál og hnoðið saman þar til deigið líkist blautum sandi. Ef ykkur finnst deigið of þurrt getið þið bætt við ca. 1 tsk af vatni og hrært aðeins áfram. Hellið deiginu í bökuform og þrýstið því í formið. Hellið frosnum berjunum yfir botninn. Þeytið eggjahvíturnar og sykurinn saman þar til vel stíft (3-5 mínútur) og dreifið því svo jafnt yfir berin. Bakið í um það bil 35-45 mínútur eða þar til berin eru farin að krauma í hliðunum og marengsinn orðinn fallega gullinn. Berið bökuna fram volga.
[…] í frystinum síðan í haust og get ekki beðið eftir að gera þessa ómótstæðilega góðu bláberjaböku með marengs. Fá hráefni og einstaklega ljúffeng útkoma. Einn af mínum uppáhalds eftirréttum.Dásamlega […]