Það eru sennilega flestir löngu búnir að ákveða hvað á að vera í eftirrétt yfir jólahátíðina. En ef þið eruð ekki búin að því þá tók ég saman nokkra uppáhalds eftirrétti og sætmeti sem ég hef sett inn á síðuna á árinu. Fyrir utan það hvað það er nú bara alltaf gaman að skoða eftirrétti og láta sig dreyma.. Sumt af þessu myndi líka sóma sér vel með síðdegiskaffinu eða sem sætur endir á jóla brönsinum.
Ég óska ykkur kæru lesendur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og vona að þið eigið gómsæta og notalega hátíð með fólkinu ykkar.
Ég hugsa að þetta sé einhver fallegasta kakan sem ég gerði á árinu. Berin gera hana sannarlega sumarlega en snjóandi flórsykur setur hana í smá jólafílíng. Hvít súkkulaðibaka með berjum myndi sannarlega sóma sér vel á hvaða veisluborði sem er. Ég myndi þyggja sneið hvenær dags sem er..
Litlar súkkulaðikökur með blautum kjarna. Klassískur eftirréttur og það góða við hann er að hann má undirbúa með góðum fyrirvara og skella svo í ofn rétt áður en hann er borinn fram. Himneskar sætar syndir..Það er varla hægt að hugsa sér einfaldari eftirrétt en þennan og ég á ennþá eftir að hitta manneskju sem þykir þetta ekki gott. Marengsbomba með rjómasúkkulaðirúsínum, pipp súkkulaðisósu og ávöxtum. Hér er um að gera að nota það sem manni þykir sjálfum best og gefa hugmyndafluginu lausan tauminn.Ég luma ennþá á bláberjum í frystinum síðan í haust og get ekki beðið eftir að gera þessa ómótstæðilega góðu bláberjaböku með marengs. Fá hráefni og einstaklega ljúffeng útkoma. Einn af mínum uppáhalds eftirréttum.Dásamlega tiramisu. Ég veit ég sagði að bláberjabakan væri einn af mínum uppáhalds eftirréttur en í alvöru þá held ég að tiramisu nái hugsanlega að toppa hana. Þetta Toblerone Tiramisu er yndislega gott. Þeir sem halda að þeir séu ekki mikið fyrir tiramisu skipta um skoðun þegar þeir smakka þetta. Það er bara þannig. Döðluterta með jarðarberjarjóma og súkkulaðikremi. Það þarf svosum ekkert að vera að orðlengja neitt um þessa klassísku tertu sem hefur verið á borðum hjá okkur fjölskyldunni svo árum skiptir. Alltaf svo góð, bæði sem eftirréttur eða á kaffiborðið. Þessi einfalda súkkulaðimús er alltaf góð. Ég mæli með að bera hana fram með þeyttum rjóma og ferskum berjum, hindber þykja mér best með henni. Eftirréttur sem flestum þykir góður!Fersk og létt en bráðnar í munni. Sítrónu blondína myndi sóma sér vel sem eftirréttur á eftir steikinni eða reyktu kjöti. Borin fram með þeyttum rjóma eða vanilluís og skreytt með jólalegum rifsberjum. Langar ykkur ekki í sneið?Voruð þið ekki örugglega búin að sjá jólaísinn í ár? Rjómaís með Baileys, Irish cream súkkulaði og piparkökum. Ég gat ekki gert listann án þess að hafa þennan með. Síðast en alls ekki síst. Brownie með rjómaosti og pipp súkkulaði. Ó hún er svo góð að maður gæti næstum grátið. Fólk sem hefur prófað er sannfært og nú er komið að þér.
Njótið jólanna kæru vinir! Ég hlakka til að deila enn fleiri uppskriftum með ykkur á nýju og spennandi ári 2014.
Skildu eftir svar