Af hverju er svona gaman að gera eitthvað annað en það sem maður á að vera að gera? Núna til dæmis ætti ég að sitja við skriftir á lokaritgerðinni minni sem virðist í augnablikinu bara alls ekki ganga, allavega ekki nema á hraða óvenju hægfara snigils. Í gær fékk ég þá frábæru hugmynd um hádegisbil að nú væri fullkominn tími til að búa til granólað sem ég hef hugsað um svo lengi. Svo ég gerði það. Það góða var að það tók ekki meira en hálftíma og afraksturinn var eitthvað það allra besta granóla/múslí/morgunkorn sem ég hef smakkað. Svo tímanum var vel varið.
Ég fjárfesti nýlega í bókinni It´s all good eftir Gwyneth Paltrow (Gvendólínu) og hef lesið hana spjaldanna á milli á spjaldtölvunni, keypti sumsé ipad útgáfu sem mér þykir hin mesta snilld. Bókin er frábær, full af hollum og einföldum uppskriftum sem lofa allar afar góðu og ég hef iðað í skinninu að prófa. Fyrsta uppskriftin sem ég prófaði hitti allavega beint í mark! Mig hefur lengi langað að búa til granóla en hef alltaf hikað þar sem aðal uppistaðan eru oftast hafrar sem því miður fara ekki svo vel í mig. Þetta glútenlausa granóla þar sem aðal uppistaðan eru quiona flögur þótti mér því tilvalið að prófa og ég sé svo sannarlega ekki eftir því. Ég hvet ykkur innilega og óhikað við að prófa þetta granóla og alls ekki vera hrædd við quinoa flögurnar þó þið hafið aldrei prófað þær. Þær fást í öllum heilsubúðum og sennilega í heilsurekkum einhverra matvöruverslana. Það er þess virði að gera sér ferð til að næla sér í þetta ofurholla og prótínríka góðgæti.
Guðdómlegt granóla Gvendólínu (Lítillega breytt uppskrift úr bókinni It´s all good):
- 1/2 bolli ólífuolía (líka hægt að nota kókosolíu)
- 1/2 bolli hlynsíróp (ég notaði aðeins minna en fannst þetta samt alveg nógu sætt)
- 3 bollar quinoaflögur
- 1 1/4 bolli gróft saxaðar valhnetur
- 1 1/4 bolli gróft söxuð graskersfræ
- 1 bolli þurrkaðar gráfíkjur, skornar í litla bita
- 1 bolli þurrkuð trönuber (Gvendólína notar sveskjur)
- Gott sjávarsalt (ég notaði um 1/2 tsk)
Aðferð: Hitið ofn í 170 gráður með blæstri. Pískið saman ólífuolíu og hlynsírópi. Bætið quinoaflögunum saman við og blandið vel saman. Hellið á pappírsklædda ofnplötu og dreifið vel úr. Stráið smá sjávarsalti yfir, bakið í 15 mínútur og hrærið einu sinni til tvisvar í á meðan. Takið úr ofninum og bætið restinni af hráefnunum saman við á plötuna og blandið vel saman. Bætið e.t.v við örlitlu sjávarsalti í viðtbót. Bakið áfram í um 10 mínútur. Takið úr ofninum og látið kólna alveg, setjið svo í stóra glerkrukku eða annað ílát og geymið lokað við stofuhita. Granólað er gott með grískri jógúrt, ab mjólk, hreinni jógúrt eða venjulegri mjólk. Uppáhaldið mitt er að hella yfir það smá möndlumjólk og borða í morgunmat.. eða eftirrétt. Ofsalega gott!
Skildu eftir svar