Á sunnudaginn helltist óskemmtileg flensa í son minn, sama dag fór maðurinn til útlanda og áform mín um vinnusama viku fóru út um þúfur. Í dag er stráksi þó allur að hressast, pabbinn kominn heim og rútínan sem átti að byrja á mánudaginn gat því byrjað í morgun, þremur dögum seinna. Það á ekkert sérstaklega vel við mig að vera heima í marga daga án þess að fara út, ég verð eiginlega að komast út allavega svona einu sinni á dag. Þegar það er ekki í boði verður kona að finna sér eitthvað til dundurs svona heima við sem felur líka í sér eitthvert skemmtanagildi fyrir lasið barn. Það voru því vel þroskuðu bananarnir á eldhúsborðinu sem fengu að finna til tevatnsins á sunnudaginn og úr þeim varð þetta dásamlega bananabrauð sem sonurinn bæði naut þess að baka og borða. Það er samt eiginlega rangnefni að kalla þetta brauð þar sem þetta er nú meira í líkingu við sæta köku, þetta er allavega sætabrauð það er eitt sem er víst og ó já, gott er það. Uppskriftin er stór og passaði rétt svo í stærsta brauðformið mitt, það væri því ekki úr vegi að skipta deiginu í tvö minni form.
Mjúkt bananabrauð með súkkulaðibitum:
- 3 egg
- 2 1/2 dl púðursykur
- 1 tsk vanilluextract
- 1 1/2 dl bragðlítil olía
- 3 stórir bananar stappaðir
- 1/2 dl súrmjólk
- 5 dl fínmalað spelt eða hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 3 dl saxað dökkt súkkulaði eða súkkulaðidropar
Aðferð: Þeytið saman egg, púðursykur og vanillu þar til ljóst og létt. Bætið olíunni út í í mjórri bunu og setjið stappaða bananana út í ásamt súrmjólkinni. Blandið þessu vel saman. Bætið þurrefnunum varlega út í ásamt súkkulaðinu og hrærið þessu saman með sleikju. Setjið í smurt form og bakið í u.þ.b 50 mínútur við 160 gráður með blæstri eða þar til að prjóni sem stungið er í miðja kökuna kemur tiltölulega þurr upp. Ef brauðið er bakað í tveimur minni formum er bökunartíminn u.þ.b 35 mínútur. Það er þó nauðsynlegt að fylgjast vel með því ofnar eru ansi misjafnir.
Harpa
Ég bakaði þetta brauð í gær og jemundur minn, það er alveg R.O.S.A.L.E.G.A. gott! Kærar þakkir fyrir uppskrftina.
helenagunnarsd
En gaman að vita Harpa! Takk fyrir kveðjuna 🙂
Kær kveðja, Helena