Í dag eru tvö ár síðan fyrsta uppskriftin birtist á Eldhúsperlum! Uppskriftirnar nálgast óðfluga annað hundraðið og fylgjendur síðunnar á Facebook fóru yfir 7000 í gær. Ég ætla nú ekki að hafa þennan pistil langan en langar þó að þakka ykkur fyrir að lesa bloggið, prófa uppskriftirnar og vera svona dugleg að láta heyra í ykkur. Dundið mitt við þessa síðu er án ef uppáhalds áhugamálið mitt og orðið mun stærra en mig óraði fyrir í upphafi. Ég hlakka til næsta eldhúsperlnu árs með ykkur og enn fleiri uppskriftum. Í tilefni dagsins, og þess að pabbi minn á afmæli á morgun (hæ pabbi!). Ákvað ég að útbúa þennan dásamlega eftirrétt. Hugmyndin að réttinum kviknaði á einum af óþarflega löngum Pinterest rúntum mínum og þróaðist svo út í þennan eilítið jólalega og gómsæta eftirrétt. Þetta er einstaklega ljúffengur réttur sem er þeim kostum búinn að hann má undirbúa nokkru áður en hann er borinn fram. Ég hvet ykkur heilshugar til að prófa!
Piparmyntu ostakaka með After eight (fyrir 8-10):
- Botninn:
- 250 gr súkkulaðikex (t.d. oreo eða annað kex með kremi á milli)
- 10 After eight plötur
- 2 msk brætt smjör
- 1/2 tsk sjávarsalt
- Fylling:
- 1 dós mascarpone ostur við stofuhita (250 gr)
- 5 dl rjómi
- 5 dl mjólk
- 2 pakkar Royal vanillubúðingur
- 1/2 tsk piparmyntudropar/piparmyntuextract (má sleppa)
- 5 jólabrjóstsykurs stafir eða nokkrir piparmyntu brjóstsykursmolar
- Nokkrir dropar bleikur matarlitur (má sleppa)
- After eight til að skreyta
Aðferð: Byrjið á að gera botninn. Setjið kexið og after eight í matvinnsluvél. Vinnið í fína mylsnu og hellið smjörinu og saltinu saman við. Geymið. Þeytið saman 5 dl af mjólk og allt búðingsduftið, setjið til hliðar. Þeytið mascarpone ostinn þar til mjúkur og léttur, hellið rjómanum saman við og þeytið þar til blandan er eins og léttþeyttur rjómi. Þeytið þá lagaða vanillubúðinginn saman við þar til blandan er slétt og þykk. Myljið brjóstsykurinn í fínt duft og bætið um 3 msk af duftinu út í ostakökublönduna ásamt piparmyntudropunum og matarlit, ef þið notið. Geymið smá af duftinu til að skreyta með. Þið getið annað hvort sprautað ostakökuna í lítil glös á fæti og borið fram fyrir hvern og einn eða sett hana í eina fallega glæra skál. Þegar ostakökunni hefur verið komið fyrir eins og á að bera hana fram er gott að kæla hana í ísskáp í um 2-4 klst.Takk fyrir að fylgjast með Eldhúsperlum elsku vinir!!
Íris
Þessi desert á sannarlega skilið að vera afmælisuppskrift. Gerði hann fyrir stóran vinahóp og sló alveg í gegn. Bæði veislulegur, virkilega bragðgóður og svolítið öðruvísi. Takk Helena !