Þessi uppskrift átti nú að vera komin inn fyrir löngu. Ég gerði hana 28. ágúst á afmælisdegi mömmu og færði henni á kaffiborðið. Síðan þá hef ég bara verið frekar upptekin í vinnu og allskonar skemmtilegheitum og svo skelltum við hjónakornin okkur til Parísar í langþráða nokkurra daga ferð. Það er skemst frá því að segja að París var fullkomin, allt sem við borðuðum var gott, enda allir veitingarstaðir vel ígrundaðir gegnum Tripadvisor og hint frá vönu Parísarfólki, hótelið var svo jafnvel enn betra, fólkið skemmtilegt og borgin skartaði sínu fegursta. Við náðum að skoða helling og upplifa ýmislegt sniðugt en erum sem betur fer enn með langan lista af hlutum sem við náðum ekki að gera. Við hjóluðum borgina þvera og endilanga og ég er handviss um að það sé ein besta leiðin til að skoða stórborgir á borð við París, maður nær aldrei að ganga svona mikið og svo missir maður af svo miklu ef of miklum tíma er varið í neðanjarðarlestunum. Við förum aftur til Parísar, það er alveg víst. Ég held að ég þurfi ekkert að hafa of mörg orð um þessa tertu, hún er bara alveg ofsalega góð og sparileg ..og ekki sykurlaus eða laus við eitt eða neitt nema hollustu kannski. Hún er reyndar glútenlaus. Það er eitthvað!
Pavlova með mokkarjóma og daimkurli:
- 6 eggjahvítur
- 300 gr sykur
- 1 tsk vanilluextract
- 1 tsk borðedik eða hvítvínsedik
- 2 tsk maíssterkja eða kartöflumjöl
Aðferð: Hitið ofn í 180 gráður, ég nota blástur því marengsinn er bakaður á tveimur plötum. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja aðeins að freyða. Bætið sykrinum hægt og rólega saman við á meðan þið þeytið áfram. Þeytið í 1-2 mínútur eftir að sykurinn er allur kominn saman við. Bætið þá vanillu, ediki og maíssterkjunni saman við og þeytið örstutt saman við. Skiptið marengsinum jafnt á tvær smjörpappírsklæddar bökunarplötur og myndið hringi sem eru u.þ.b 20 cm í þvermál. Setjið plöturnar inn í ofn og lækkið þá strax hitann í 120 gráður. Bakið í 75 mínútur. Opnið þá hurðina á ofninum og leyfið marengsinum að kólna alveg inni í ofninum. Sniðugt að baka pavlovurnar að kvöldi og leyfa þeim að kólna inni í ofni yfir nótt.
Fylling:
- 7 dl rjómi
- 1 tsk instant kaffiduft leyst upp í 1 msk af sjóðandi vatni
- 2 msk hreint kakóduft
- 3 msk flórsykur
- 1 tsk vanilluextract
- 2 pokar Daimkurl
- Jarðarber eftir smekk
Aðferð: Rjóminn, kaffið, kakóið, flórsykur og vanilla sett saman í skál og þeytt þar til næstum stífþeytt. 1 poki af daimkurli sett út í. Helmingurinn af rjómanum settur á milli marengsbotnanna og hinn helmingurinn settur ofan á. Skreytt með restinni af daimkurlinu, jarðarberjum og bræddu súkkulaði.
Ofan á:
- 50 gr suðusúkkulaði
- 1/2 dl rjómi
Aðferð: Brætt saman í potti eða örbylgjuofni við vægan hita. Leyft að kólna alveg og svo hellt yfir tertuna að lokum.
Sonja
Er öllu bætt ut i oþeyttan rjomann og hann svo þeyttur Helena? Kveðja Sonja
helenagunnarsd
Já! Passar. Öllu blandað samannema Daimkurlinu 🙂 því svo bætt út í þeyttan mokka rjómann.