Það er örugglega enginn að lesa blogg í dag sem er kannski ekki skrýtið svona föstudag fyrir verslunarmannahelgi. En það er allt í lagi.. Ég ætla að vera heima um helgina og hugsa mér gott til glóðarinnar að hafa það notalegt og njóta þess að sofa í mínu rúmi og geta dregið andann svona nokkuð örugglega (halló frjókornaofnæmi!). En mér finnst samt mikilvægt að njóta þess að vera í fríi þó ég sé heima. Við höfum til dæmis oft farið út að borða um verslunarmannahelgar og hugsa að við látum verða af því sem og að njóta útiveru enda á veðrið að vera dásamlegt um helgina. Ég er allavega jafn spennt fyrir þessari gúrmei heimaveru og einhverjir eru spenntir fyrir þjóðhátíð, alveg satt. Uppskriftin í dag er samt dálítið ferðalagavæn. Matarmikið túnfisksalat í hollari kantinum sem heldur sér vel og er laust við majónes. Ofsalega gott, prófið bara. Góða helgi!
Matarmikið túnfisksalat
- 1 lítill rauðlaukur eða 1/2 stór, smátt skorinn
- 1 rauð paprika, smátt skorin
- 4 harðsoðin egg, smátt skorin
- 2 dósir túnfiskur í vatni (vatni hellt af)
- 4 msk Philadelphia light rjómaostur
- 4 msk Kotasæla
- Vel af nýmöluðum svörtum pipar
- Söxuð fersk steinselja
Aðferð: Öllu blandað vel saman. Smakkað til með pipar. Stórgott á ristað brauð eða hrökkbrauð.. uppáhaldið mitt er að setja salatið á gróft rúgbrauð. 



Fyrstu nóttina gistum við í borginni Bolzano sem er í Suður Týról, svo lá leið okkar niður að Garda vatni í bæinn Sirmione. Þar á eftir keyrðum við niður á Rivíeru og gistum í smábænum Finale Ligure. Eftir það lá leiðin yfir landamærin til Frakklands og fyrsti viðkomustaður þar var Saint Maxine, svo Tarascon og að síðustu Argéles Sur Mer. Þá fórum við yfir landamærin til Spánar, til Barcelona og svo sem leið lá niður eftir til Alicante þar sem við hittum foreldra mína og héldum áfram suður í íbúðina þeirra.
Ef ykkur langar að forvitnast meira um ferðina getið þið kíkt á instagram síðuna mína, finnið mig þar undir: helenagunnarsd, set þar inn allskonar myndir! Eins og gefur að skilja verandi á þessum stað, við matarkistu Miðjarðarhafsins var maturinn í ferðinni allri einstaklega góður. Einföld og framúrskarandi hráefni sem fengu ávalt njóta sín í hverjum rétti og allt bara eitthvað svo gott að það lá stundum við tárum hjá undirritaðri. Félagsskapurinn, umhverfið og sólin hafa mjög sennilega haft sitt að segja líka.

