Mér fannst alveg upplagt að gera þessar bláberja banana muffins seinnipartinn í dag með stráknum mínum. Rigning, þoka og mánudagur og ég veit ekki um betra tækifæri en einmitt á svoleiðis dögum en að baka smotterí og leyfa litla manninum að taka þátt. Þessar muffins eru mjög einfaldar svo krakkar geta alveg tekið þátt í bakstrinum. Auk þess eru þær bara frekar lítið óhollar.. 🙂 Allavega er lítill sykur í þeim og það er alltaf plús þegar kemur að bakstri fyrir börn í mínum bókum. Svo luma ég enn á nokkrum pokum í frystinum af aðalbláberjum síðan í haust og finnst nú ekki ónýtt að nota þau í svona fínerí. Uppskriftin gefur um það bil 18 muffins og ég baka þær í pappírsklæddum muffinsformum. Það er upplagt að frysta helminginn en þær geymast í 2-3 daga ófrystar. Þær eru mjúkar og mjög góðar með smá kanilbragði sem gerir gæfumuninn.
Uppskrift:
- 2 vel þroskaðir bananar, stappaðir
- 2 egg
- 1 dl hrásykur
- 1/2 dl olía (hvaða olía sem er, t.d kókos eða ólífu)
- 2 dl hrein jógúrt (hér má líka nota ab mjólk eða jafnvel sýrðan rjóma)
- 1 tsk kanill
- 1 tsk vanilluextract
- Salt á hnífsoddi
- 5 dl spelt
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk matarsódi
- 2 dl frosin bláber
Aðferð:
Ofn hitaður í 170 gráður með blæstri. Stöppuðum bönunum, eggjum, jógúrti, olíu, sykri, vanillu og kanil blandað vel saman með sleif. Spelt, lyftiduft, matarsóda og salti blandað saman, bætt út í og rétt blandað saman, ekki hræra of mikið. Bláberjum hrært létt saman við. Sett í muffinsform og bakað í 20 mínútur.
Þessir litlu puttar áttu frekar erfitt með að bíða eftir að þær kólnuðu en biðin var þess virði 🙂 Verði ykkur að góðu !