Í Vikunni sem kom út í dag má finna fimm glænýjar og freistandi uppskriftir frá Eldhúsperlum. Uppskriftirnar eiga það allar sameiginlegt að vera í miklu uppáhaldi hjá mér og mínum en hafa þó ekki birst hér á blogginu. Þar má finna uppskriftir af tveimur tegundum af smákökum, hafrakossum með kremi sem láta mann næstum roðna og mjúkum Nutella smákökum með sjávarsalti sem eru í senn einhverjar einföldustu en bestu smákökur sem ég hef smakkað.Auk þessu eru tvö ný og spennandi salöt og rjúkandi dásamleg frönsk innbökuð lauksúpa full af ást og osti og eiginlega aðeins of góð á köldum vetrarkvöldum. Ég mæli því eindregið með því að þið nælið ykkur í eintak mín kæru og prófið eitthvað af nýju uppskriftunum.