Mér finnst yfirleitt erfitt og svona eiginlega ekki hægt að kalla eitthvað best, svo að ég tali nú ekki um best í heimi. Allt fer þetta nú eftir smekk. Hafandi sagt það þá hef ég iðað í skinninu af spenningi yfir því að deila uppskriftinni að þessum vöfflum með ykkur. Gleymið öllum vöfflum sem þið hafið nokkurn tíman smakkað og gleymið sannarlega tilbúnu vöfflumixi úr pakka. Þetta eru bestu vöfflur sem ég hef smakkað og voru aðrir smakkarar algjörlega á sömu skoðun. Þær eru allt í senn léttar, mjúkar, loftkenndar og síðast en ekki síst stökkar að utan. Vöfflulaga englaský myndi einhver jafnvel kalla þær. Þær eru meira að segja ennþá góðar eftir að hafa kólnað og staðið á diski í 2-3 klukkutíma. Hvenær hafa vöfflur verið góðar eftir svoleiðis bið? Ég bara spyr.
Það eru nokkur leyndarmál að baki þessum himnesku vöfflum. Til dæmis að í þeim eru þeyttar eggjahvítur sem gera þær svo léttar, ekki mjólk heldur einungis ab mjólk (eða hrein jógúrt eða súrmjólk), maíssterkja auk hveitis og svo eru þær bragðbættar með örlitlum amaretto líkjör sem er sætur möndlulíkjör. Honum mætti þó vel sleppa og nota t.d vanilluextract í staðinn. Ég mæli þó eindregið með amaretto líkjörnum ef þið eigið hann til. Þessar verðið þið að prófa kæru vinir – strax í dag!
Bestu vöfflur í heimi (Örlítið breytt uppskrift frá Fifteen Spatulas):
Bollamálið sem ég nota er 2,4 dl:
- 2 egg, rauða og hvíta aðskilin
- 2 bollar ab mjólk, súrmjólk eða hrein jógúrt
- 1/3 bolli bragðlítil matarolía
- 1 msk amaretto líkjör (eða 2 tsk vanilluextract)
- 1 1/2 bolli hveiti eða fínmalað spelt
- 1/2 bolli maíssterkja/Maizena (í gulu pökkunum)
- 3 tsk vanillusykur
- 1 msk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 3 msk sykur
Aðferð: Byrjið á að hræra saman eggjarauðum, olíu, ab mjólk og amaretto líkjör. Sigtið hveitið, maíssterkjuna, vanillusykurinn og lyftiduftið út í og blandið saman við. Má vera aðeins kekkjótt, ekki hræra lengi. Þeytið eggjahvíturnar með 3 msk af sykri þar til hvíturnar verða vel stífar (3-5 mínútur með rafmagnsþeytara). Hrærið eggjahvítunum varlega saman við deigið með stórri skeið eða sleikju, gætið þess að slá ekki loftið úr eggjahvítunum. Hitið vöfflujárn og bakið vöfflurnar. Þær lyfta sér mjög vel svo passið að setja ekki of mikið deig í vöfflujárnið (ég setti t.d of mikið á þessum myndum – ekki gera eins og ég). Ef þið berið þær ekki strax fram leyfið þeim þá að kólna á grind svo ekki myndist raki undir þeim. Afgangs vöfflur er upplagt að frysta og skella í brauðristina þegar á að nota þær. Berið vöfflurnar fram með öllu því sem hugurinn girnist. Mér þykir best að hafa með þeim heimalagaða aðalbláberjasultu og þeyttan rjóma. Einfalt og dásamlegt.