Ég var með þennan einstaklega fljótlega og góða kjúklingarétt með kasjúhnetum í gærkvöldi. Þennan er upplagt að gera þegar ekki er mikill tími til eldamennsku og ég get nánast fullyrt að það er fljótlegra að matreiða réttinn en að fara út á næsta skyndibitastað. Uppskrftina fann ég á síðunni hennar Mörthu Stewart fyrir margt löngu síðan en átti alltaf eftir að prófa. Ég varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Prófið þennan.
Kjúklingur með kasjúhnetum (breytt uppskrift af www.marthastewart.com)
- 700 gr beinlaust kjúklingakjöt t.d læri eða bringur
- 2 msk maíssterkja eða kartöflumjöl
- 4 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar
- 4 vorlaukar, smátt saxaðir
- 3 msk hrísgrjónaedik
- 1 1/2 dl hoisin sósa
- 1 lítið brokkolíhöfuð, skorið í smáa bita
- 100 gr ristaðar kasjúhnetur
- Salt, pipar, chilliflögur og olía
Aðferð: Byrjið á að skera kjúklinginn í passlega munnbita, setjið í skál með maíssterkjunni og veltið vel uppúr. Kryddið með salti og pipar.Hitið 2 msk af olíu á stórri pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann er stökkur og nánast eldaður í gegn. Bætið hvítlauknum og vorlauknum á pönnuna, steikið í 1-2 mínútur og hellið þá hrísgrjónaedikinu út á.Látið sjóða niður í 1 mínútu. Hellið hoisin sósunni yfir ásamt ca. 1/2 dl af vatni, kasjúhnetunum og brokkolíinu. Blandið vel saman og látið sjóða í 2-3 mínútur.Ég vil hafa réttinn sterkan svo ég bætti við hressilega af muldum chilliflögum. Smakkið til þar til rétturinn er eins og þið viljið hafa hann. Berið fram með hrísgrjónum.