Þessi dásamlega kaka var í eftirrétt hjá okkur í gær eftir vel heppnaðar heimabakaðar Eurovison partý pizzur. Ég veit ekki hvort sú staðreynd að það er mjög langt síðan ég bakaði sem hefur áhrif á mat mitt á þessa köku en ég ég get svarið það að þetta er ein besta kaka sem ég hef smakkað. Hún er hrikalega mjúk og pínu klístruð og alls ekki of sæt þó maður myndi halda það allavega miðað við titilinn og svona.. Það er allavega mitt mat að kökur sem eru ofursætar falla yfirleitt ekki í góðan jarðveg hjá fólki. Ef maður getur varla klárað eina sneið án þess að vera við það að fá sykursjokk og langar ekki í meira, þá er of mikill sykur. Það er ekki svo með þessa köku. Maður gæti sennilega alveg borðað hálfa kökuna ef því væri að skipta.
- 150 gr dökkt súkkulaði (t.d suðusúkkulaði og 70% súkkulaði til helminga)
- 100 gr smjör
- 3 egg
- 75 grömm hrásykur eða kókospálmasykur (fæst t.d í heilsuhillunum í Bónus)
- 2 msk flórsykur
- 1 tsk vanilluextract
- 4 msk hveiti eða fínmalað spelt
- 1/2 tsk salt
- 1 tsk lyftiduft
- 100 gr piparmyntufyllt súkkulaði, t.d Pipp
Fyrir ostaköku blöndu:
- 125 gr rjómaostur (1 lítil dós)
- 1 egg
- 3 msk flórsykur
- 1 tsk vanilluextract
- 2 msk brætt smjör eða bragðlítil olía
- 1 msk hveiti eða fínmalað spelt
Aðferð: Hitið ofninn í 160 gráður með blæstri (annars 180 gráður) og klæðið hringlaga lausbotna kökuform með smjörpappír. (Ég notaði 23 cm form.) Byrjið á að bræða saman súkkulaði og smjör fyrir brownie kökuna í potti við lágan hita. Takið af hitanum og leyfið að kólna aðeins. Á meðan blandið þið saman ostakökunni. Byrjið á að þeyta rjómaostinn t.d með handþeytara þar til mjúkur. Bætið þá öllu hinu saman við og hrærið vel saman. Setjið til hliðar. Þeytið saman egg, sykur, flórsykur og vanillu þar til það verður létt og loftkennt. Hellið þá bræddu súkkulaðinu og smjörinu saman við og hrærið vel. Sigtið saman hveitið, lyftiduft og salt og hærið því saman við með sleikju. Hellið deiginu í kökuformið. Raðið pipp súkkulaðibitunum jafnt yfir og hellið því næst ostaköku blöndunni yfir. Blandið þessu örlítið saman með litlum hníf eða teskeið. Bakið neðarlega í ofni í 30-35 mínútur. Ef þið stingið prjóni í kökuna á hún að vera frekar blaut og klístrast við prjóninn. Látið kökuna standa í a.m.k 1 klst áður en þið takið kökuna úr forminu og færið á kökudisk.Látið hana kólna alveg áður en þið skerið hana og berið fram með þeyttum rjóma og ferskum berjum.