Það er nú bara þannig að það þarf alltaf að vera eitthvað í matinn. Líka þó að jólin séu að koma 🙂 Þegar tíminn er naumur eins og eiginlega alltaf á virkum dögum langar mig svo oft í eitthvað gott í matinn en hef alls ekki tíma til að standa yfir pönnum og pottum svo tímunum skipti. Mér finnst því alltaf jafn ánægjulegt að elda rétti sem taka enga stund í undirbúningi og svo sér ofninn bara um restina og ég get gert eitthvað skemmtilegt eða gagnlegt á meðan.
Ég var eiginlega búin að gleyma hversu gott það getur verið að elda heilan kjúkling í ofni. Á sumrin grillum við hann reyndar oft heilan á standi (meira um það seinna). Við borðum oft kjúkling hérna á heimilinu og oft þegar ég er að ákveða hvað á að vera í matinn hugsa ég hvernig kjúkling geti ég eldað. Ég fékk hugmyndina að þessum rétti í amerískum matreiðsluþætti sem heitir Barefoot Contessa, það er allt gott sem þessi kona eldar svo ég ákvað að prófa og hef eldað þennann kjúkling oft og mörgum sinnum síðan og hann klikkar aldrei. Það er aðeins mismunandi hvaða grænmeti ég nota en mér finnst nauðsynlegt að hafa gulrætur og fennelið gefur alveg ofsaleg gott bragð. Mæli með því að þið prófið það. Svo hef ég alltaf kartöflur þar sem sá 4 ára er mikill kartöflu aðdáandi.
Ofnbakaður kjúklingur með kartöflum og grænmeti – Fyrir fjóra.
Það sem ég nota í þennan rétt er:
- 1 heill kjúklingur (1.5kg)
- 2-3 bökunarkartöflur eða nokkrar minni
- 2-3 gulrætur
- 1 frekar stór laukur
- 1 fennel
- 1 sítróna
- 1 hvítlaukur
- Salt, pipar, ólífuolía og rósmarín
- 1/2 l kjúklingasoð (vatn og kraftur)
Aðferð: Ofn hitaður í 200 gráður með blæstri (annars 210-220 gráður). Ég byrja alltaf á því að skola kjúklinginn og þerra hann vel með eldhúspappír. Því næst ber ég á hann vel af ólífuolíu, salta og pipra vel að innan sem utan. Svo sker ég sítrónuna og hvítlaukinn í tvennt, þversöm. Hef hýðið á hvítlauknum og sting þessu öllu saman inn í kjúklinginn.
Svo er bara að skera allt grænmetið frekar gróft niður og setja í botninn á eldföstu móti eða á bökunarplötu, krydda með salt og pipar og smá ólífuolíu. Leggja svo kjúklinginn ofan á grænmetið og strá smá rósmarín yfir allt saman. Það finnst mér alveg gera gæfumuninn. Svo helli ég kjúklingasoðinu í fatið. Þetta er svo bakað í um það bil 50 mínútur, eða þar til kjarnhitinn er kominn í a.m.k 70 gráður.
Ég ber þetta bara svona fram eins og það kemur, er ekki með neitt aukalega með, enda bæði kartöflur og grænmeti og svo kemur alveg dásamleg soð sósa í botninn á fatinu af grænmetinu, sítrónunum og kjúklingnum. Þetta er alveg ofsalega gott 🙂
Verður alveg pottþétt
á borðstólnum milli jóla og nýárs!
Namm hvað þetta er gott. Nú er ég búin að prófa fimm uppskriftir héðan og allt verið mjög gott. Næst á dagskrá er að prófa réttinn úr rauða pottinum 🙂
Frábært! En gaman að vita að þú hafir verið ánægð 🙂
Það er bara dásamlegt að setja sítrónu eða appelsínu, engifer og hvítlauk og jafnvel chili inn í kjúkling, þá verður hann svoooo safaríkur því ávextirnir gefa honum gufu sem sígur út í kjötið. Hrein snilld, ég nota mikið appelsínur og sítrónur og límónur og geri þetta líka við kalkúninn um jólin. Klikkar ekki… og sítrónusafi gerir kjöt líka meyrara, svo ef mmaður er með lakari bita má bæta þá verulega með því að ýra sítronusafa yfir.
Sammála Nanna. Eftir að hafa prófað nokkrar aðferðir þá trjónir þessi aðferð sannarlega á toppnum. Hlakka einmitt svo til að prófa að elda kalkún á þennan máta.
hæhæ var að spá í að gera þetta en helduru að ég geti ekki sett bara í leirpottinn minn eða er verra að elda þetta með loki?
Sæl Bogga
Mér þykir gott að fá stökka húð á kjúklinginn, ég myndi persónulega sleppa lokinu og hafa hann í opnu íláti.
Kær kveðja, Helena
Setur þú sítrónuna með berkinum á inn í kjúklinginn?
Já! Með berkinum og öllu 🙂 sker bara í báta eða tvennt.