Ég rakst á þessa uppskrift fyrir nokkru síðan og hef svona meira og minna verið með hana á heilanum síðan. Og Guð minn góður þar var ekki að ástæðulausu, þessir litlu bitar eru himneskir. Stökkur botninn, mjúk döðlukaramellumiðja og súkkulaði ofan á allt saman. Auðvitað er þetta ekkert Twix, ég veit það vel en sú sem ég fékk hugmyndina frá kallar þetta heimatilbúið Twix og hún flokkar þetta undir vegan.
Hugmyndin er upphaflega komin frá síðu sem heitir Oh She Glows og er matarblogg sem fjallar um vegan mataræði. Fólk sem kýs vegan mataræði sneiðir ekki eingöngu hjá kjöti og fiski heldur sleppir það öllum afurðum úr dýraríkinu þ.m.t öllum mjólkurafurðum og eggjum. Ég hef stundum skoðað uppskriftir sem flokkast sem vegan (veit ekki íslenska orðið yfir þetta?) og það er oft margt sniðugt í gangi þar. Til dæmis ýmsar uppskriftir að svona agalega girnilegu sælgæti sem tekur frekar stuttan tíma að gera og þarfnast oft ekki baksturs. Maður þarf hinsvegar oftast að vera vopnaður töfrasprota, blandara eða matvinnsluvél og þá eru manni allir vegir færir.
Þó þetta nammi flokkist upphaflega sem vegan myndi ég ekki kalla þetta hollustufæði. Þetta er nammi og alveg hrikalega gott nammi. En það býr yfir þeim kosti að við vitum svona nokkurn veginn alveg hvaða hráefni það inniheldur. Ég notaði hnetusmjör í það en það væri ekki úr vegi að nota t.d möndlusmjör í staðin ef um hnetuofnæmi er að ræða. Bitana er best að geyma í ísskáp eða frysti.
Heimatilbúið Twix með döðlukaramellu
Botninn:
- 2 1/2 bolli Rice Crispies eða annað blásið hrísmorgunkorn
- 4 msk agave sýróp
- 2 msk hunang
- 2 msk hreint hnetusmjör
- 1 tsk vanilluextraxt
- Salt á hnífsoddi
Setjið bökunarpappír í form sem er ca. 20 x 30 cm (skúffukökustærð), leyfið pappírnum að ná upp með hliðunum. Allt nema rice crispies sett í pott og brætt saman við vægan hita þar til suðan kemur upp. Þá er þetta tekið af hitanum og rice crispies bætt út í. Hrært vel þar til þetta loðir saman. Hellið í formið með bökunarpappírnum og sléttið úr með rökum höndum þar til þetta fyllir út í formið. Ágætt að stinga lófunum af og til undir kalda vatnið til að sporna við klístri. Stingið botninum inn í frysti meðan karamellan er útbúin.
Döðlukaramella:
- 450 gr steinalausar döðlur
- 2 msk hreint hnetusmjör
- 2 msk möndlumjólk eða vatn til að þynna karamelluna
Setjið döðlurnar í skál og hellið sjóðandi heitu vatni yfir til að mýkja þær. Leyfið þessu að standa í ca. 10 mínútur. Hellið þá vatninu frá og setjið döðlurnar í matvinnsluvél ásamt hnetusmjörinu og vökvanum. Vinnið saman þar til fínt mauk myndast sem er þó vel þykkt. Þetta væri líka hægt að gera með töfrasprota. Takið botninn úr frystinum og dreifið karamellunni jafnt yfir. Setjið aftur í frystinn á meðan súkkulaðið er brætt.
- 1 poki Siríus Konsum súkkulaðidropar (150 grömm)
- 1 tsk kókosolía (má sleppa)
Brætt og hellt ofan á döðlukaramelluna. Sett aftur í frystinn og kælt þar til súkkulaðið er hart, a.m.k 30 mínútur. Skorið í litla bita. Best að geyma í frysti eða ísskáp. Gómsætir litlir gleðibitar 🙂 Verði ykkur að góðu!
Amma Þura
Takk