• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Gratineraður fiskur með blómkálsgrjónum

maí 7, 2013 by helenagunnarsd 20 Comments

min_IMG_2310Þessi fiskréttur er svo góður að við eiginlega áttum ekki til orð þegar hann var snæddur núna eitt kvöldið. Bæði ungir sem aldnir nutu hans í botn. Hann er stútfullur af grænmeti og fiski og sósan er hrikalega góð. Mér finnst allavega alveg magnað að horfa á son minn moka upp í sig fiski og grænmeti með sósu og smjatta í millitíðinni yfir því hversu góður maturinn sé. Hann er nefnilega ekki ennþá kominn á það stig að reyna að vera kurteis yfir matnum svo harðari gagnrýnanda er varla hægt að fá. Við foreldrarnir vorum reyndar alveg innilega sammála honum. Ég hef oft gert fiskrétti með hefðbundnum hrísgrjónum en ákvað að prófa að gera þennan núna með blómkáls”grjónum”. Ég held að það verði ekki aftur snúið. Okkur fannst miklu betra að hafa blómkálið heldur en venjulegu hrísgrjónin, bæði bragðið og áferðin var dásamlegt. Ég verð að mæla alveg innilega með því að þið prófið þennan rétt sem fyrst!

Gratineraður fiskur með blómkálsgrjónum (fyrir 3-4):

  • 1 lítið blómkálshöfuð, rifið niður á grófu rifjárni
  • 600 grömm hvítur fiskur (ég var með þorskhnakka)
  • 1 lítil dós Kotasæla
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 2 msk majones
  • 1 tsk karrý
  • 1 msk hunangsdijon sinnep (eða venjulegt dijon sinnep)
  • 1 rauð paprika, skorin smátt
  • 1/2 púrrulaukur, skorinn smátt
  • Ólífuolía, salt, nýmalaður pipar og Krydd lífsins (Frá Pottagöldrum eða annað gott krydd)
  • Rifinn góður ostur, ég notaði Óðals ost

Aðferð: Byrjið á að hita ofninn í 180 gráður með blæstri. Rífið blómkálið á rifjárni og dreifið því jafn í botninn á eldföstu móti. Kryddið með salt og pipar og dreypið yfir smá ólífuolíu og um 1 msk af vatni. Bakið í ofni í ca. 10 mínútur – eða á meðan þið útbúið restina af réttinumPage_1Skerið þorskinn í hæfilega bita, kryddið með salti, pipar og Kryddi lífsins.min_IMG_2293 Saxið blaðlaukinn og paprikuna smátt. min_IMG_2287Hrærið saman innihaldið í sósuna (kotasæluna, sýrða rjómann, majones, karrý, sinnep) og smakkið hana til með kryddinu, salti og pipar. min_IMG_2289Takið blómkálið útúr ofninum og lækkið hitann á ofninum í ca.160 gráður. Leggið fiskstykkin ofan á. Dreifið sósunni þá yfir fiskinn og þar ofan á paprikunni og púrrulauknum. min_IMG_2297min_IMG_2300Dreifið að lokum rifnum ostinum yfir og bakið í um það bil 20-25 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. min_IMG_2308Berið fram t.d með léttu salati eða spírum. Ég mæli sérstaklega með blaðlauksspírum frá Ecospira, það er milt og gott laukbragð af þeim og þær pössuðu mjög vel með réttinum.min_IMG_2320min_IMG_2314

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Einfaldur fiskréttur, Fiskréttur, Fiskur í sósu, Góður fiskréttur, Gratineraður fiskur, LKL fiskur, LKL uppskrift, ofnbakaður fiskur, Þorskur uppskrift

Previous Post: « Einfalt sumarsalat með brokkolí, jarðarberjum og piparosti
Next Post: Tælensk fiskisúpa »

Reader Interactions

Comments

  1. Guðrún Þórbjarnardóttir

    maí 7, 2013 at 23:55

    Þennan á ég örugglega eftir að nota oft, við borðum svo mikinn þorsk. Takk Helena mín þú ert snillingur.
    Kv Guðrún

    Svara
    • helenagunnarsd

      maí 7, 2013 at 23:58

      Takk fyrir hrósið kæra Guðrún. Vona að ykkur líki rétturinn jafn vel og okkur 🙂

      Svara
  2. Birta

    maí 15, 2013 at 20:35

    Ég eldaði þennan í kvöld og hann er brjálæðislega góður 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      maí 15, 2013 at 22:07

      Frábært að vita það 🙂 Okkur fannst hann einmitt svo dásamlega góður.

      Svara
  3. VV

    maí 22, 2013 at 18:39

    Mallar í ofninum….hlakka til að prófa

    Svara
  4. Inga

    maí 29, 2013 at 19:40

    Þessi var á boðstólnum hjá okkur í kvöld og við erum öll “sprungt” 🙂 Æðislega góður réttur og gaman að því hvað það er mikið grænmeti í honum 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      maí 29, 2013 at 19:56

      En gaman að vita það Inga 🙂

      Svara
  5. Vilborg Benedikt

    júní 26, 2013 at 14:51

    kaupa fisk a morgun, get ekki bedid

    Svara
  6. Ingibjörg Ágústsdóttir

    september 6, 2013 at 11:51

    namm, eldaði þennan og hann var rosa góður

    Svara
    • helenagunnarsd

      september 6, 2013 at 12:54

      Frábært Ingibjörg, gaman að vita 🙂

      Svara
  7. Hildur Sunna

    janúar 28, 2014 at 13:56

    Girnilegur! Væri hægt að sleppa majonesinu? Maður er alltaf í einhverju leiðinda aðhaldi!

    Svara
    • helenagunnarsd

      janúar 28, 2014 at 14:56

      Fjárans aðhald alltaf 😉 En já leikandi hægt að sleppa því!. Nota það alls ekkert alltaf. Það er líka örugglega gott að nota gríska jógúrt í staðin fyrir sýrðan rjóma eða setja þá grísku í stað majónessins. Endalausir möguleikar.

      Svara
  8. Nafnlaust

    janúar 29, 2014 at 21:36

    Kemur a óvart, mjog mjog goður, elda hann pottþett aftur og aftur. Blomkalið er æði undir fiskinn.

    Svara
  9. Sigurjóna Hauksdóttir

    febrúar 3, 2014 at 20:26

    Var með þennan æðislega rétt i kvoldmatinn og er kominn á uppáhalds listan hjá okkur 🙂 takk 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      febrúar 3, 2014 at 21:45

      Frábært. Svo gaman að vita, takk fyrir að deila með mér 🙂

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  10. Kristín

    september 15, 2014 at 19:49

    Ég hlakka til að prófa þennan

    Svara
  11. Betri Árangur

    október 19, 2015 at 18:58

    Þetta er einn af bestu fiskréttum sem ég hef smakkað nammi namm 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 19, 2015 at 20:10

      En gaman að vita! Takk fyrir 🙂

      Svara

Trackbacks

  1. Gratineraður þorskur með blómkálsgrjónum | LKL skrifar:
    maí 14, 2013 kl. 14:53

    […] Uppskriftina er að finna á blogginu hennar Helenar Gunnarsdóttur – http://www.eldhusperlur.com – smelltu hér […]

    Svara
  2. Ofnbakaður þorskur með blómkáli og blaðlauk | dolly.is skrifar:
    október 27, 2014 kl. 18:32

    […] í dag leitaði ég eftir uppskrift þar sem væri þorskur og blómkál og ég fann eina slíka (sjá hér). Ég ákvað að vera ekkert að prenta þetta út lagði það aðeins á minnið hvað væri í […]

    Svara

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme