Mikið hef ég hlakkað til að deila þessari uppskrift með ykkur. Mamma á allan heiðurinn af þessum sívinsæla, stórgóða og ofur fljótlega fiskrétti sem er á borðum hjá okkur í fjölskyldunni að minnsta kosti einu sinni í viku. Innan fjölskyldunnar gengur rétturinn undir því skemmtilega nafni ríkisfiskur og hefur hann verið eldaður óteljandi oft á síðustu árum í hinum ýmsu útgáfum. Mamma var samt búin að biðja mig um að kalla þetta ekki ríkisfisk, hæ mamma mín :).. Allavega, tilurð réttarins má að miklu leyti rekja til grillgleði pabba sem helst vill grilla á hverjum degi. Það er samt tiltölulega erfitt að grilla ýsu nema með smá tilfæringum og eftir smá hugmyndavinnu í eldhúsinu þróaði mamma þennan rétt sem samtvinnar bráðhollan fiskrétt sem er fullur af grænmeti og gerir grillglaðan pabba ánægðan.
Þið verðið að prófa þennan rétt, ef þið viljið ekki grilla hann er vel hægt að stinga honum inn í vel heitan ofn eða undir grillið í ofninum. Það er samt alveg hægt að grilla réttinn í hvaða veðri sem er þar sem maður þarf ekkert að standa við grillið og snúa og vesenast eitthvað. Ég lofa því að það er alveg þess virði að hafa dregið fram grillið þegar maður finnur ljúft grillbragðið af réttinum.
Ég hvet ykkur til að prófa ykkur áfram með grænmeti, uppskriftin sem ég gef hér er grunnur og um að gera að leika sér. Það er líka gott að nota t.d paprikusneiðar, chilli, engifer, fennel og svo mætti lengi telja.
- 600 grömm ýsuflök, roðlaus og beinlaus
- 2 laukar, skornir í sneiðar
- 1 sítróna
- 3-4 vænar lúkur ferskt spínat
- 1 askja piccolo eða kirsuberjatómatar
- 1 lítil krukka fetaostur með kryddolíu
- Sítrónupipar
- Ólífuolía
- 1/2 dl vatn
- Spírur til skrauts
Aðferð: Leggið ýsuflökin á olíuborinn stálbakka, álbakka eða þykkan ”heavy duty” álpappír sem þolir grillun. Ef þið notið álpappír, brjótið þá upp á kantana og búið til einskonar bakka. Kryddið flökin vel með sítrónupipar báðu megin. Skerið sítrónuna í sneiðar og leggið yfir flökin.Dreifið lauknum svo yfir, því næst spínatinu ásamt tómötunum og hellið fetaostinum ásamt mest allri olíunni úr krukkunni yfir.Kryddið yfir allt með sítrónupipar og hellið 1/2 dl af vatni yfir. Grillið á sjóðandi heitu grilli í 10-15 mínútur eða bakið í ofni við 220 gráður þar til tómatarnir eru heitir í gegn, fiskurinn eldaður og osturinn aðeins farinn að bráðna. Dreifið spírum yfir og berið fram strax. Ég mæli sérstaklega með þessum spírum frá Ecospíra. Það er hægt að gerast áskrifandi og fá sendan vikulega pakka fullan af ferskum og gómsætum spírum.
Helga Ottósdóttir
..og mamma heldur áfram: ”ég set smátt saxaðan Chili pipar líka yfir fiskinn og strimlaskorna rauða papriku, núna síðast bætti ég við ferskri engifer rót,(rifin með kartöfluflisjara) það er svona vetrarútgáfa….stundum kapers, svo kemur spínatið,tómatarnir og fetaosturinn, og sítrónusneiðarnar eru komnar á toppinn,og pínu meira af sírónupiparnum yfir allt saman, svo set ég alltaf ‘dass’ af vatni yfir, þá fær maður svo dásamlegt soð með.. sem okkur finnst ómissandi. Engar kartöflur, og ekkert annað meðlæti er í boði, það er algjör óþarfi, rétturinn nýtur sín best einn og sér.” 🙂 Bestu kveðjur frá mömmu.
Rut f
Eldaði fiskinn í kvöld. Jamm jamm alveg frábær. Ég á alveg öruglega eftir að hafa hann aftur.
Takk fyrir min
Kv. Rut
Áslaug Sigurjónsdóttir
Prufa þetta einn daginn
Þórdís
Hvernig getur maður gerst áskrifandi og fengið sent heim baunaspírur?:)
helenagunnarsd
Þu getur haft samband við Ecospíra gegnum Facebook og skráð þig hjá þeim þar 🙂
Kær kveðja, Helena
Sólveig Skúla.
Þessi réttur er æði. Þar sem ég bý svo vel að eiga alltaf til fisk, er ég búin að prófa hann með bæði ýsu og þorsk, og þorskurinn toppar það. Prófa kannski kola næst. Kveðja að vestan.